Utanríkisráðuneytið segir að allar undanþágubeiðnir fyrirtækisins Vélfags hafi verið teknar til efnislegrar meðferðar þrátt fyrir kvartanir fyrirtækisins um að engin svör hafi fengist við umsóknum um undanþágur.
Fyrirtækið Vélfag hefur undanfarið kvartað undan því að geta ekki greitt skuldir fyrirtækisins til íslenskra kröfuhafa. Þar ber helst að nefna lífeyrissjóði og leiguskuldir.
Samanlögð skuld fyrirtækisins við lífeyrissjóði er um 23 milljónir króna vegna vangreiddra iðgjalda. Einnig skuldar félagið FM-húsum ehf. 50 milljónir króna vegna vangoldinnar leigu.
Aðrar skuldir eru gagnvart skattinum, verkalýðsfélögum, þjónustuaðilum, birgjum og öðrum kröfuhöfum líkt og Arion banka og Landsbankanum.
Óskað eftir svörum um undanþágur
Vélfag er fyrsta og eina íslenska fyrirtækið sem hefur verið beitt viðskiptaþvingunum í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu vegna meintra tengsla við rússneska fyrirtækið Norebo og feðgana Vitaly og Nikita Orlov.
Utanríkisráðuneytið veitti Vélfagi í fyrstu undanþágur til þess að sinna viðskiptum en tók þær til baka í nóvember á síðasta ári og lýsti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra því yfir að fyrirtækið hefði ekki sýnt samstarfsvilja. Það hefði ekki skilað gögnum sem gætu staðfest að sala á fyrirtækinu frá Norebo hefði verið raunveruleg og sönn.
Löng málaferli hafa farið fram á milli Vélfags og utanríkisráðuneytisins sem stóðu yfir frá því á síðasta ári og þangað til á þessu. Þeim lauk með dómi Hæstaréttar þar sem íslenska ríkið var sýknað af kröfum Vélfags. Fyrirtækið krafðist þess að íslenska ríkið myndi snúa við ákvörðun Arion banka að frysta fjármuni félagsins.
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að það hefði það hefði verið hlutverk Arion banka hf. að meta hvort skilyrði frystingar væru fyrir hendi og að ráðherra hefði ekki vald til þess að endurskoða mat bankans efnislega.
Eftir dóm Hæstaréttar sagði Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Vélfags að næsta skref fyrirtækisins væri að hefja málaferli gegn Landsbankanum og Arion banka vegna frystingarinnar. Þau réttarhöld eru ekki hafin.
Kvörtun til umboðsmanns Alþingis.
Þann 19. október sendi lögmaður Vélfags kvörtun til Umboðsmanns Alþingis þar sem fyrirtækið taldi utanríkisráðherra hafa dregið afgreiðslu óþarflega á þeim undanþágum sem fyrirtækið hefur óskað eftir. Þær umsóknir voru sendar frá ágúst til október á þessu ári.
Í erindi sínu til umboðsmanns kvartaði Vélfag einnig yfir ákvörðunum Arion banka og Landsbankans um að frysta fjármuni félagsins sumarið 2025.
Fyrirtækið heldur því fram að stjórnvöld hafi frá upphafi gengið út frá því að tengsl væru milli Vélfags og rússneska sjávarútvegsfyrirtækisins JSC Norebo, sem komst á þvingunarlista Evrópusambandsins árið 2025.
Vélfag segir að þau tengsl hafi í raun rofnað árið 2023 þegar hlutafé hafi verið selt til félagsins Titania Trading Limited í Hong Kong. Utanríkisráðuneytið segir þó að ekki hafi verið sýnt fram á þetta.
Ásamt þessu telur Vélfag að ákvarðanir utanríkisráðherra hafi verið óþarflega íþyngjandi en fyrirtækið sé ekki starfhæft í dag þar sem fjármunir þess hafi verið frystir. Þá hafi félaginu verið meinað um að sækja um lán til þess að greiða skuldir sínar eða stunda viðskipti.
Segja allar umsóknir hafa fengið efnislega meðferð
Í svari við fyrirspurn fréttastofu til utanríkisráðuneytisins er staðfest að ráðuneytinu hafi borist fjöldi beiðna um undanþágur frá frystingu fjármuna Vélfags frá því að fjármunir félagsins voru frystir.
Þær beiðnir hafi allar hlotið efnislega meðferð innan ráðuneytisins samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.
Í svarinu segir að meðferð slíkra mála kalli oftar en ekki á öflun frekari upplýsinga til að ráðuneytið geti uppfyllt rannsóknarskyldu sína. Fyllstu nákvæmni sé beitt við meðferð beiðna um undanþágur frá frystingu til að leggja mat á hvert tilvik fyrir sig í samræmi við skilyrði laga, markmið þeirra og tilgang. Sú vandvirkni sé skylda ráðuneytisins til þess að hægt sé að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins sem þátttakanda í þvingunaraðgerðunum. Hún tryggi að ekki verði grafið undan markmiðum þvingunaraðgerða eða komist hjá þeim.
Í lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna felist sú skylda stjórnvalda að frysta fjármuni þeirra sem sæta þvingunaraðgerðum til þess að koma í veg fyrir flutning á fjármagni og hindra að þeir sem sæta frystingu fái greiðslur í hendur eða geti nýtt fjármuni með öðrum hætti.
Bent er á í svarinu að málaferlum á milli Vélfags og ríkisins hafi lokið með sýknu ríkisins af öllum kröfum. Þar hafi einnig verið staðfest að ráðherra hafi mjög þrönga heimild til þess að veita undanþágur frá frystingu fjármuna í takmörkuðum tilgangi að tilgreindum skilyrðum uppfylltum.
Að öðru leyti veiti ráðuneytið ekki upplýsingar um meðferð einstakra stjórnsýslumála sem eru til meðferðar.