Russell játaði fyrst að hafa orðið Huntley að bana en breytti frásögn sinni á öðrum degi réttarhaldanna. Samkvæmt Reuters sögðu sækjendur að Russell hefði ítrekað lamið Huntley í höfuðið með málmstöng og síðan sagt við fangaverðina: „Vonandi drap ég hann“.
Russell fékk lífstíðardóm án möguleika á lausn fyrir þrjú morð og nauðgun.
Ian Huntley, svokallaði Soham-morðinginn, sat í fangelsi fyrir að hafa orðið tveimur ungum stúlkum í Soham í Bretlandi að bana. Hann starfaði sem húsvörður í skóla stúlknanna. Huntley var að afplána tvo lífstíðardóma í HMP Frankland-fangelsinu þegar ráðist var á hann með gaddastöng úr málmi.