Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur falið skipulagsfulltrúa að koma brunavörnum við Tónlistarskóla Húsavíkur í viðunandi horf eftir að ábending barst frá skólastjóra tónlistarskólans.
Það eru fjögur ár síðan Guðni Bragason, skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur, benti bæjaryfirvöldum og slökkviliðinu í Norðurþingi á þá staðreynd að brunavörnum væri verulega ábótavant í álmu skólans. Skólinn er í sama húsnæði og Borgarhólsskóli, grunnskólinn í bænum.
Árið 2022 fór fram brunaæfing og kom í ljós að enginn tónlistarkennari heyrði í brunabjöllunni í sínum stofum. Guðni vakti athygli á þessu við slökkviliðsstjóra sem ætlaði að ganga í verkið. Í erindi sem Guðni sendi fyrir hönd Tónlistarskólans til bæjaryfirvalda í Norðurþingi í nóvember segir um spjall hans við slökkviliðsstjórann: „Var niðurstaða okkar spjalls að fá bjöllu og blikkandi ljós í allar stofur svo ekki fari á milli mála ef eldur kemur upp. En ekkert gerðist í þeim málum þrátt fyrir ítrekanir mínar.“
Aðeins tveir heyrðu í bjöllunni árið 2025
Önnur brunaæfing fór fram við skólann síðastliðinn vetur. Kennsla var í öllum tíu stofum tónlistarskólans meðan á henni stóð. Aðeins tveir kennarar af tíu heyrðu í brunabjöllunni og náðu að koma sér út. Ljóst er að bæta þurfi úr þessu, þó fyrr hefði verið:
„Enn hefur ekkert gerst í þessum málum. Flóttaleiðir eru fáar og þröngar og er þörf á að skoða þau mál ef sú staða verður uppi að rýma þurfi stofur og slíkt sérstaklega í kjallara og væri því gott að fá úttekt á rýminu og hvernig væri hægt að auðvelda flóttaleiðir.“
Skipulagsráð vill ganga strax í verkið
Á fundi skipulagsráðs í dag var þetta erindi efst á dagskrá. Ráðið var samhljóma í sinni ákvörðun að fela „sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að koma brunavörnum og öryggismálum í viðeigandi horf í Tónlistarskóla Húsavíkur.“
Þrettán starfsmenn starfa hjá Tónlistarskóla Húsavíkur og fá öll börn bæjarins á aldrinum 4-8 ára kennslu á hljóðfæri. Það er því fjöldinn allur af nemendum sem er í húsnæði skólans daglega.