Við upphaf þingfundar dagsins sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis að samkvæmt starfsáætlun Alþingis hefði verið gert ráð fyrir að önnur umræða fjárlaga yrði í dag.
„Af því verður ekki en samkvæmt upplýsingum frá fjárlaganefnd standa vonir til þess að umræðan fari fram í byrjun desember,“ sagði hún.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti fyrir fjárlagafrumvarpi sínu fyrir næsta ár þann 10. september síðastliðinn. Samkvæmt því var gert ráð fyrir fimm milljarða króna afgangi af rekstri ríkissjóðs á næsta ári. Frumvarpið gekk til fjárlaganefndar þann 14. september og til stóð að önnur umræða um það færi fram í dag.
Frá því að frumvarpið var kynnt og áður en það kom til annnarrar umræðu kynnti Seðlabanki Íslands Peningamál fjórða ársfjórðungs, þar sem kom fram að miðað við breyttar efnahagshorfur reiknaði bankinn með sautján milljarða halla árið 2027 frekar en fimm milljarða afgangi.
Ríkisstjórnin hefur sagst ætla að halda markmiði um hallalaus fjárlög og Daði Már kynnti aðgerðir í þá veru fyrir ríkisstjórn í morgun.
Ætla má að fjárlaganefnd taki tillögur Daða Más fyrir áður en önnur umræða um frumvarpið fer fram.