Aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris – hjálparsamtaka fyrir flóttafólk og hælisleitendur, fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sema er ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Mikill fjöldi fólks var saman kominn við aðalmeðferðina Semu til stuðnings.
Málið snýst um fjársöfnun Solaris fyrir Palestínu snemma árs 2024. Fjársöfnuninni var hrint af stað til að koma einstaklingum sem höfðu hlotið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar út af Gasa og til Íslands.
Solaris bar ábyrgð á framkvæmd söfnunarinnar, utanumhaldi og ráðstöfun þeirra fjármuna sem söfnuðust og Sema er forsvarsmaður samtakanna.
Ákæran byggir á því að fjársöfnun Solaris hafi ekki verið tilkynnt til sýslumanns áður en hún hófst samkvæmt lögum um opinberar fjársafnanir. Tilkynning um hana hafi í staðinn borist hálfu ári eftir að henni lauk.
Sækjandi í málinu er Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi fyrir hönd lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Ákæruvaldið fer fram á að Sema verði sakfelld og henni gert að greiða sekt. Sækjandi leggur til að sektin verði 400 þúsund krónur.
Sema neitar sök í málinu og gaf skýrslu fyrir dómi í dag. Hún bar fyrir sig að samtökin hafi ekki verið meðvituð né upplýst um að þeim bæri að skila tilkynningunni áður en söfnunin hófst.
Segir málið lykta af pólitískum ofsóknum
Tal barst að Einari S. Hálfdánarsyni hæstaréttarlögmanni fyrir dómnum en hann kærði fjársöfnunina til lögreglu í mars 2024. Lögregla felldi málið niður í tvígang áður en ríkissaksóknari gerði þeim að taka það upp aftur og Sema var í kjölfarið ákærð.
Sema sagði málið lykta af pólitískum ofsóknum og að Einari hefði einfaldlega mislíkað málstaðurinn. Hún telur að kæran hefði endað í ruslinu hefði einhver annar en hann kært. Einar hafi áður skrifað skoðanapistla um hana og sakað hana um gyðingahatur.
„Hann er einn af þeim sem ég hef verið með á bakinu um þó nokkurn tíma.“
Í málflutningi sínum sagði verjandi Semu að undanfarin tvö ár hefði leikhús fáránleikans verið sett á svið. Tilraunir hefðu verið gerðar til þess að fremja mannorðsmorð á Semu og hafa áhrif á starf hennar. Einar hefði til að mynda sent kæru sína á hendur Semu á hinar ýmsu stofnanir, þar á meðal atvinnuveitanda hennar, Háskóla Íslands.
Enginn tímarammi um tilkynningar tilgreindur á vef sýslumanns
Lögfræðingur Semu, Helga Vala Helgadóttir, benti á að Sýslumaðurinn á Suðurlandi, sem fer með málefni fjáraflana, hefði á engum tímapunkti gert athugasemd við hvenær tilkynningunni var skilað eða kallað eftir henni.
Þá komi ekki fram á vef sýslumannsins að það beri að skila tilkynningunni áður en söfnun hefst.
Solaris hafi því í góðri trú skilað tilkynningunni samhliða gögnum og bókhaldi innan þess tímafrests sem þeim bar að skila þeim. Solaris hafi verið í samskiptum við embættið yfir sumarið og meðal annars leitað samþykkis til að verja eftirstöðvum fjáröflunarinnar í barnahjálp í Palestínu og fengið samþykki fyrir því.
Ákæruvaldið sagði athafnaleysi embættisins engu breyta um hvort Sema hefði brotið lög. Það væri skýrt í lögum að fjáraflanir eigi að tilkynna fyrir fram. Samskipti við starfsmenn sýslumanns gætu ekki afsalað henni ábyrgð. Jafnvel þótt brotið sé ekki framið af ásetningi eða gáleysi breyti það heldur engu um sekt hennar.
Sjö fjáraflanir tilkynntar fyrir fram á 5 árum
Verjandi Semu benti á að ekki hefði verið farið leynt með upphaf og endi söfnunar Solaris heldur hefði þvert á móti verið tilkynnt um það á samfélagsmiðlum, vef söfnunarinnar og í fjölmiðlum.
Þá vísaði hún ítrekað til upplýsinga frá Sýslumanninum á Suðurlandi um að á árunum 2021–2026 hefðu borist 13 tilkynningar um fjáraflanir. Þar af hefðu sjö borist áður en safnanirnar hófust.
Því mætti ætla að hundruð fjáraflana hefðu átt sér stað á Íslandi án þess að tilkynnt væri um þær sérstaklega.
Þá sagði Helga Vala að starfsmaður hjá sýslumanni hefði tjáð sér í óformlegu samtali að embættið hefði vakið athygli dómsmálaráðuneytisins á því að tilefni væri til þess að endurskoða lögin. Ákæran gegn Semu vegna formsgalla fæli því í sér mismunun, þar sem lagaákvæðið hefði ekki að fullu verið í framkvæmd um árabil.
Ákæruvaldið hafnaði þeirri málsvörn og sagði þá staðreynd að aðrir einstaklingar hefðu hugsanlega ekki verið kærðir eða ákærðir fyrir svipuð brot ekki hnekkja lagaskyldu Semu.
Skýr tilmæli frá ríkissaksóknara
Rannsóknarlögreglumaður í málinu og starfsmaður hjá Sýslumanninum á Suðurlandi báru vitni fyrir dómi.
Lögreglumaðurinn kvaðst hafa unnið að rannsókn málsins frá því að fyrsta kæra barst. Hann sagðist ekki hafa spurt sérstaklega um framkvæmd sýslumanns á lögum. Honum hefði ekki verið kunnugt um að aðeins sjö fjáraflanir hefðu verið tilkynntar til embættisins áður en þær hófust á síðustu fimm árum.
Honum væri ekki kunnugt um að sambærileg mál sem þessi væru til rannsóknar lögreglu. Þetta tiltekna mál hafi fyrst verið rannsakað eftir að kæra barst frá manni sem taldi mikilvægt að það yrði rannsakað.
Spurður hvort hann yrði oft var við að kæra óskilds aðila hlyti viðlíka framkvæmd og þessi sagði lögreglumaðurinn það ekki skýrt. Í þessu tilfelli hafi lögregla aftur á móti fengið skýr tilmæli frá ríkissaksóknara um að taka málið upp aftur.
Ekki eftirlitsaðili með fjáröflunum sem ekki eru tilkynntar
Starfsmaður sýslumannsins á Suðurlandi var næsta vitni en Landsréttur hafnaði kröfu Semu um að kalla sýslumanninn á Suðurlandi til sem vitni í málinu. Starfsmaðurinn sem bar vitni hefur haft umsjá með opinberum fjársöfnunum frá því í apríl 2025, það er eftir að Solaris hafði skilað inn gögnum um fjáröflunina.
Aðspurð sagði hún að embættið hefði ekki tilkynnt fjáröflun Solaris til lögreglu og að hún vissi ekki til þess að sýslumaður hefði tilkynnt fjáraflanir til lögreglu áður. Það væri ekki innan verksviðs embættisins að hafa eftirlit með fjáröflunum sem ekki eru tilkynntar. Það sé því ekki hægt að útiloka að slíkar safnanir eigi sér stað.
„Prinsippatriði að láta ekki undan kúgun“
Verjandi Semu sagði í málflutningi sínum að það að lögreglustjórinn hefði ákveðið að gefa út ákæru eftir að hafa fellt málið niður í tvígang benti til þess að embættið láti stjórnast af einhverju öðru en virðingu fyrir gildandi lögum. Það mætti skoða betur.
Ætla megi að löggjöfin um opinberar fjársafnanir hafi verið gerð til að koma í veg fyrir svik og pretti, ekki til þess að koma í veg fyrir fjársafnanir sem sé komið á fót til að bjarga mannslífum.
Semu bauðst að játa sök og greiða sekt og þar með sleppa við að málið færi fyrir dóm. Hún segist hafa afþakkað það af prinsippástæðum.
„Vegna þess að ég er sannfærð um að við höfum ekki gert neitt rangt. Það er ákveðið prinsippatriði að láta ekki undan kúgun,“ sagði Sema og endaði skýrslutökuna á orðunum: „Lifi frjáls Palestína.“