Gústaf Níelsson er fluttur inn til bróður síns Brynjars Níelssonar borgarfulltrúa tímabundið á meðan „hann er að íþyngja íslenska heilbrigðiskerfinu“ eins og Brynjar orðar það í bráðskemmtilegri færslu á Facebook. „Má segja að hann hafi verið á lífsleikninámskeiði hjá mér þessar vikur en nú er svo komið að Soffía er búin að klára öll kvíðalyfin sem til eru á heimilinu og farin að bryðja þau lyf sem hendi eru næst,“ segir Brynjar og vísar þar til skáldlegrar útgáfu af eiginkonu sinni.
Gústaf fluttur inn til Brynjars