Það var um hálf þrjú aðfaranótt 14. júlí 2024 sem karlmaður var á leið heim úr brúðkaupi ásamt vini og vinkonu. Þau gengu á gangstéttinni en maðurinn á akbrautinni við hlið hennar. Vinkona hans kallaði til hans að bíll væri að koma og í þeim töluðu var ekið á hann.
Húð á fæti mannsins rifnaði af ofan við hné, rof kom í liðpoka og sin í lærvöðva fór í sundur. Samkvæmt læknisvottorðum hefði hann hlotið mikla varanlega færniskerðingu og verið í hættu á lífshættulegum sýkingum án sérhæfðrar meðferðar. Var hann metinn með 15% örorku.
Grunuð um ölvunarakstur
Konan nam staðar við enda brúarinnar, gekk að slysstað og sagðist hafa spurt hvort allt væri í lagi. Hún ber því við að hafa þurft að flýta sér í Reykholt og því ekki staldrað lengur við. Þá hafði hún ekki samband við lögreglu.
Lögregla hafði nokkuð fyrir því að hafa uppi á konunni. Hún vildi ekki fá þá til sín í Reykholt en hitti lögreglu á veitingastað og blés í áfengismæli. Mældist hún yfir mörkum, var handtekin grunuð en ölvunarakstur en sagðist ekki hafa drukkið áfengi fyrr en eftir að hafa komið í Reykholt um nóttina.
Konan bar fyrir sig að maðurinn hefði verið á miðjum vegi og atvikið gerst mjög hratt. Hún hefði orðið stressuð og ekki áttað sig á alvarleika málsins.
Féllst ekki á fullyrðingar konunnar
Dómari í málinu féllst ekki á þetta. Ekkert benti til þess að maðurinn hefði farið skyndilega af gangstéttinni út á akbraut auk þess sem fullyrðingar konunnar um að hafa verið nýkomin út úr hringtorgi héldu ekki vatni. Hann taldi sannað að konan hefði ekið án nægilegrar athygli og líklega of hratt miðað við aðstæður en vegurinn var blautur og rökkur.
Konan var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og brot gegn umferðarlögum í Héraðsdómi Suðurlands föstudaginn 20. nóvember. Dómurinn sagði einnig að með því að yfirgefa vettvang hefði hún raskað rannsóknarhagsmunum.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að konan hafði ekki áður gerst sek um brot en einnig að hún hefði ekki gengist við brotum sínum. Fangelsisrefsingin fellur niður haldi konan skilorði í tvö ár. Henni var gert að greiða níutíu þúsund króna sekt í ríkissjóð og sakarkostnað upp á 1,3 milljónir króna.