Skipulagðir hópar karla leita uppi stúlkur sem eru í umsjá írskra yfirvalda og beita þær kynferðisofbeldi. Sérfræðingur sem vinnur gegn barnamansali segir stjórnvöld hafa brugðist börnunum og líkir stöðunni við hneykslið sem kom upp í Rotherham á Englandi.
JP O’Sullivan, hjá írsku samtökunum MECPATHS, segir í samtali við Irish Mail on Sunday að yfirvöld hafi fengið ítrekaðar viðvaranir um hættuna sem börnin standi frammi fyrir.
„Fólk er dauðhrætt við að Rotherham ógeðið sé að gerast eða muni gerast hér. Svarið er að þetta hefur gerst og við lifum við það, en enginn talar um það,“ segir hann.
Leita uppi dvalarheimili stúlknanna
Viðvörunin byggir meðal annars á rannsókn vísindafólks við University College Dublin á kynferðisofbeldi gegn börnum í umsjá yfirvalda.
Rannsóknin byggði á viðtölum við 21 sérfræðing og starfsmann á sviði barnaverndar og tengdra mála árið 2022. Þar kom fram að hópar karla leituðu uppi dvalarstaði barna, sérstaklega stúlkna, og beindu sjónum sínum að þeim.
Viðmælendur lýstu því meðal annars að menn kæmu á bílum að dvalarheimilum til að sækja stúlkur. Í öðrum tilvikum hefðu eldri menn myndað sambönd við stúlkur og nýtt sér berskjaldaða stöðu þeirra.
Stúlka sagði frá nauðgun eftir að hún hvarf
Eitt málanna sem komið hafa fyrir írskan dómstól snerist um unglingsstúlku í umsjá yfirvalda sem hafði ítrekað horfið af þeim stað þar sem hún dvaldi.
Samkvæmt frásögn samtakanna Child Law Project kom fyrir dómi fram að stúlkan hefði sagt frá nauðgun og orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu fimm karla. Móðir hennar lýsti því fyrir dómi hvernig hún hefði leitað dóttur sinnar á nóttunni þegar hún hvarf.
Írski miðillinn Extra greindi frá málinu í janúar og sagði það til rannsóknar hjá lögreglu. Barnaverndarstofnunin Tusla sagði í svari við miðilinn að hún hefði meðal annars aukið þjálfun starfsfólks og farið yfir viðbrögð við grun um kynferðisofbeldi gegn börnum í umsjá hennar.
Líkt við hneykslið í Rotherham
Í Rotherham var áætlað að að minnsta kosti 1.400 börn hefðu orðið fyrir kynferðisofbeldi á árunum 1997 til 2013. Óháð rannsókn leiddi í ljós alvarleg mistök yfirvalda og að meirihluti þekktra gerenda var af pakistönskum uppruna.
Írska rannsóknin gefur ekki upp heildarfjölda þolenda og því er ekki hægt að bera umfang málanna beint saman. Hún lýsir þó því hvernig karlar hafa leitað sérstaklega að börnum sem yfirvöld áttu að vernda.