Í færslu frá árinu 2021 lýsir páfinn heitinn því að kölski hafi birst honum þrisvar um lífsleiðina. Einu sinni í bíl, annað sinn í loftinu fyrir ofan kórinn í messu og í þriðja sinn á fundi með embættismönnum í Páfagarði.
„Ég gleymi ekki hvað rödd hans var hrjúf,“ skrifar hann meðal annars samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins.
Skrifar af eftirsjá
Dagbókunum var safnað saman og ritstýrt af kardinálanum Victor Fernandez sem var náinn vinur Frans. Um er að ræða fyrstu dagbækur páfa sem gefnar hafa verið út frá sjöunda áratugnum. Þær ná yfir árin frá 1992 til 2024.
Í dagbókunum fjallar hann meðal annars um kynferðisbrotamál sem skók Síle á páfatíð hans. Í heimsókn til landsins árið 2018 var hann gagnrýndur fyrir að hafa tekið upp hanskann fyrir biskup sem sakaður var um að hafa hulið yfir kynferðisbrot af hálfu sílesks prests.
„Miður mín vegna ástandsins í Síle. Það var mér erfitt að gangast við því sem gerðist í Síle. Ég hélt ekki að það væri svo alvarlegt,“ skrifar páfinn.
Hlið heljar birtust
Hann lýsir einnig árekstrum sínum við fjandann sjálfan.
„Hann leit á mig logandi augum... mun raunverulegri en síðast. Þau voru eins og eldblossar,“ skrifar hann.
Hinn vondi vitjaði hans sömuleiðis sumarið 2018 þegar hann var að leggjast til hvílu. Hann lýsir því að vítishlið hafi birst honum ljóslifandi fyrir hugskotssjónum.
„Ég horfði um stund og mig hryllti við,“ skrifar hann og segist hafa gripið til rósakrans sér til varnar.