Íbúar á Selfossi og í næsta nágrenni urðu margir varir við miklar þrumur og úrhelli í nótt og vöknuðu einhverjir úr fastasvefni vegna hávaða í morgunsárið. Búast má við eldingaveðri á Suður- og Suðausturlandi næstu daga vegna merkja um óstöðugt loft.
„Það skapar hinar fullkomnu aðstæður fyrir þrumur og eldingar til að myndast,“ segir Hera Guðlaugsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Eldingarnar voru ekki óvenjulega margar samkvæmt mælingum Veðurstofunnar en þær voru afar háværar ef marka má lýsingar íbúa. Nokkrir hafa birt færslur á samfélagsmiðlum þar sem þeir lýsa því að hafa vaknað seint í nótt. Einn þeirra, Bjarkar Snorrason, lýsir rafmagnstruflunum vegna veðursins.
„Og í þessum skrifuðu orðum kom stærsta þruman og sló þá liðinn út í rafmagnstöflunni. Rigningin sem fylgdi í kjölfar þrumunnar var eins og það ætti að tæma loftið af vatni.“
Hera segir þrumuveður vera einna algengast á Suðurlandi því að það kemur hlýtt loft að sunnan inn til landsins – þó að skilyrði til þess geti myndast hvar sem er á landinu. Á morgun og fimmtudag megi gera ráð fyrir einhverju þrumuveðri á Suður- og Suðausturlandi.
„Það er búist við hlýindum víða um land á miðvikudag og fimmtudag en svo kólnar fljótt aftur,“ segir Hera. „Ef við sjáum tilefni til þá gefum við út viðvörun eða athugasemd.“