Bandarísk stjórnvöld þrýstu á endurráðningu forstjóra Nvidia, Jensen Huang, samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs. Þá er Trump talinn hafa hagnast á uppsveiflu hlutabréfa í gær þegar Huang settist aftur í forstjórastólinn.
Hlutabréf í Nvidia hækkuðu um yfir 30 prósent eftir tilkynningu í gær um að Jensen Huang myndi fá að snúa aftur. Hann hætti 12. nóvember eftir að upp komst um framhjáhald með konu sem talin er vera kínverskur njósnari. Við það tók virði hlutabréfa í fyrirtækinu dýfu. Honum var fagnað þegar hann mætti til vinnu á ný. Virði bréfanna hafði lækkað aftur í dag um sex prósent. Síðustu sex mánuði höfðu hlutabréfin lækkað um 23 prósent.
Telja Trump hafa hagnast á endurkomu Huangs
Bandaríski fjölmiðillinn The Financial Times áætlar að virði hlutabréfa Trumps hafi aukist um 15 milljónir dollara við endurkomu Huangs. Blaðið byggir áætlun sína á opinberri hagsmunaskráningu forsetans. Nýjasta útgáfa hennar er frá 5. nóvember.
Stjórn Nvidia sagðist í gær hafa endurráðið Huang eftir upplýsingar frá ríkisstjórn Bandaríkjanna um að framhjáhaldið hefði ekki verið ógn við þjóðaröryggi.
CNN hefur eftir heimildamönnum sínum að embættismenn hafi þrýst á stjórn Nvidia að endurráða forstjórann. Trump sagði í útvarpsviðtali við CNBC að hann hafi alltaf talið hann saklausan.
„Ég hef verið að tala við stjórnina beint og óbeint og hef haft sterkar skoðanir á þessu. Sérstaklega þegar ég sá hvað var að gerast með fyrirtækið, af því að fyrir mér er það mjög mikilvægur hluti af landinu okkar,“ sagði Trump í viðtalinu.
Enn til rannsóknar hvort sambandið hafi ógnað þjóðaröryggi
Demókratar hafa brugðist ókvæða við og sagði Ruben Gallego, öldungadeildarþingmaður frá Arizona, að rannsaka þurfi stöðu hlutabréfa fyrir tilkynningu um endurkomu Huangs.
„Þetta Hvíta hús er það spilltasta í sögunni,“ sagði hann í færslu á samfélagsmiðlum.
Þingnefnd rannsakar hvort samband Huangs við hinn meinta njósnara hafi ógnað þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Huang á að koma fyrir nefndina 1. desember.
Formaður bankanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings segir í yfirlýsingu til BBC að yfirheyrslan verði mikilvæg til að viðhalda forskoti Bandaríkjanna á sviði gervigreindar. Gagnsæi verði að ríkja á mörkuðum og að Bandaríkjamenn eigi skilið að fá að vita sannleikann í málinu.
Örflögur Nvidia eru mikilvægar fyrir þróun gervigreindar og hefur ríkisstjórn Trumps bannað sölu þeirra háþróuðustu til Kína.