Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt í bæjarstjórn í dag. Áætlað er að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um rétt rúmar 344 milljónir króna sem er 9,5 milljónum meiri afgangur en blasti við eftir fyrri umræðu.
Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að einstaka gjaldliðir hafi ýmist hækkað eða lækkað. Ekki er gert ráð fyrir tekjum vegna úthlutunar lóða í áætluninni. Áætluð útgjöld til fjárfestinga lækkuðu um 770 milljónir milli umræðna.
Það skýrist fyrst og fremst af breytingum á tímasetningum framkvæmda, sem fyrirséð er að komist ekki að fullu til framkvæmda á árinu 2027.
„Á næsta ári eru fyrirhugaðar umfangsmiklar fjárfestingar, ekki síst í uppbyggingu nýrra skóla og bættri aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur. Við leggjum jafnframt áherslu á að efla menntun með fjölgun kennara, styrkja þjónustu við fjölskyldur og bæta þjónustu við eldri bæjarbúa,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.