Tilefnið er umfjöllun um danska hveitiframleiðandann Valsemøllen. Vísir greindi frá því fyrir helgi að ummerki eftir dýr og myglu hefðu fundist í korngeymslum Danish Agro sumarið og haustið 2025. Á þriðjudag viðurkenndi danska matvælaeftirlitið að það hefðu verið mistök að innkalla ekki allt hveiti frá umræddu tímabili frá framleiðandanum.
Valsemøllen innkallaði hveiti sitt í dag. Krónan innkallaði svo First Price- hveiti sem rann út í september á þessu ári á fimmtudag í síðustu viku. Það sama á við um Lífland sem innkallaði Kornax með sömu dagsetningu. Þá innkallaði Matvælastofnun sömu tegundir vegna myglueiturs yfir mörkum á föstudag.
Óhæft til neyslu í Danmörku
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna stingur niður penna nú í dag og spyr sig hver hefði átt von á því að sagan endurtæki sig kvartöld síðar.
„Haustið 2025 fór danska matvælaeftirlitið í kornlager hjá Danish Agro á Suður-Sjálandi og fann þar rottuskít, dauðar mýs og rotið korn. Kornið var metið óhæft til neyslu og sett í sölubann. Lagt var hald á um 50 þúsund tonn og fyrirtækið sektað. Þrátt fyrir það var ekkert gert varðandi þau tæpu þúsund tonn sem höfðu þá þegar farið í mylluna hjá Valsemøllen. En sú mylla malar meðal annars hveiti sem selt er á Íslandi,“ skrifar hann.
Danska matvælaeftirlitið hafi ekki talið þörf á innköllun þá. Ekki fyrr en ári síðar, þegar danski tækniháskólinn DTU, gaf út áhættumat. Þá hafði hveitið víðast hvar löngu orðið af brauði, pönnukökum og jólabakstri.
„Þetta leiðir hugann að gamla dæminu um „maðkað mjöl“ sem greypt er í þjóðarvitundina. Árið 1768 sendi danskt verslunarfélag mjöl til Íslands sem vitað var að væri skemmt, enda höfðu dönsk yfirvöld bannað sölu þess. Þrátt fyrir það sigldi verslunarfélagið með mjölið til Íslands og hafði til sölu. Við skoðun sýslumanns við komu til landsins varð ljóst að mjölið var óhæft til manneldis. Sagan segir að menn hafi brotið upp skemmur kaupmanna og kastað 1000 tunnum af skemmdu mjöli í sjóinn. Kaupmennirnir voru síðar dæmdir í svo miklar sektir að sjóðurinn sem þær mynduðu, Mjölbótasjóðurinn, varð mikil stoð og stólpi framþróunar íslensks landbúnaðar í áratugi, auk þess að kosta byggingu Menntaskólans í Reykjavík,“ skrifar Breki.
Renni í nýjan Mjölbótasjóð
Enn stóli Íslendingar á hveiti frá Danmörku og enn sé hingað sent maðkað mjöl.
„Munurinn er að í dag er okkur fyrst sagt frá því eftir að við höfum keypt það og borðað. Eftirlitið brást í dag, þar sem það virkaði fyrir 250 árum. Höfum við gengið til góðs og allt það?“
Breki leggur til að mögulegar sektir sem Danish Agro gæti þurft að greiða vegna þessa renni í nýjan Mjölbótasjóð.
„Síðast fengum við menntaskóla. Í þetta sinn mætti byggja hveitimyllu.“