Erla Gerður Sveinsdóttir sérfræðilæknir í offitumeðferð ræddi þyngdarstjórnunarlyf í Reykjavík síðdegis. Þar segir hún miður að fólk sem þurfi ekki á lyfjum sem þessum að halda sé að nota þau og varar við því að byrja og hætta notkun sviplega.
„Þetta er mikið sjokk fyrir líkamann og honum þykir það mjög ógnandi þannig að það þarf að trappa lyfin hægt upp og það þarf að trappa þau hægt niður aftur,“ segir hún.
Lyfin segir hún sömuleiðis ekki vera neitt að leika sér að. Aukaverkanir geti í sjaldgæfum tilfellum verið mjög alvarlegar. Hún nefnir varanlega skemmd á sjóntaug sem dæmi.
„Það er aukin hætta á gallsteinum. Það er breyting á andlegri líðan getur komið fram og í báðar áttir, bæði betri og verri. Það er alls konar sem getur gerst þannig að maður er ekkert að leika sér með þessi lyf. Maður reynir að kortleggja stöðuna vel áður en lyfin eru sett inn og fylgjast svo vel með þeim, hverju eru þau að breyta í líkamanum. Þannig að við getum nýtt þessi hjálpartæki á mjög áhrifaríkan og góðan hátt,“ segir Erla.
Lyfin hafi þróast hratt og séu farin að ná árangri á við skurðaðgerð.
„Þau eru farin að ná árangri sem er mjög svipaður þeim sem að magaermi getur náð. En enn þá er magahjáveita öflugasta meðferð sem við eigum við alvarlegri offitu og það er ekki í sjónmáli að lyfin komi í staðinn fyrir hana,“ segir Erla Gerður Sveinsdóttir sérfræðilæknir í offitumeðferð.