Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu um gervigreind á Alþingi, meðal annars til að ræða þátttöku Íslands í alþjóðlegu ákalli um öflug líkön og hlutverk landsins hvað það varðar. Snorri Másson þingmaður Miðflokksins mælti fyrir þessu á Alþingi í dag.
„Á allra síðustu dögum og vikum höfum við horft upp á framfarir í þróun gervigreindar sem hafa verið örari en djörfustu spár gerðu ráð fyrir. Eðlilega er margt rætt og ritað um tækifærin fyrir Íslendinga og fyrir mannkynið ef því auðnast að nýta þessa nýju tækni til góðs. En til þess að svo megi verða þarf að vanda sérstaklega til verka núna.“
Snorri sagði að vanda yrði til verka. Flestir væru sammála því að ef menn héldu ekki rétt á málum yrði raunveruleg hætta á að þeir misstu stjórn á tækninni með ófyrirséðum afleiðingum.
„Að sjálfsögðu eru hamfarir ekki eina mögulega útkoman hérna og íslensk stjórnvöld óska sér þess að sjálfsögðu í sinni stefnumótun að þessi tækni verði til góðs,“ sagði Snorri.
„En úr því að við erum í raun stödd núna í algerlega nýjum veruleika er kannski ekki nóg að ræða bara um það hvernig við fínpússum ýmis útfærsluatriði á þessu sviði. Líklega er tímabært að eiga dýpri umræðu um þær grundvallarbreytingar sem eru í þann mund að verða á mannlegu samfélagi og hvort við Íslendingar séum ekki þeirrar skoðunar að svona máttug tækni þurfi t.d. að sæta ströngu eftirliti eða takmörkunum.“