Mikill þrýstingur er á Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur eftir að hún lét orð falla í viðtali sem túlka má sem daður við samsæriskenninguna um útskiptin miklu.
Í viðtali við danska miðilinn BT sagði Mette að hún væri Evrópubúi, Dani og frá Álaborg.
„Og ég er ekki fylgjandi miklum útskiptum (d. befolkningsudskiptning). Ég trúi því að hér þurfi að vera sterk meirihlutamenning,“ sagði Mette í viðtalinu sem túlkað hefur verið sem svo að hún sé fylgjandi samsæriskenningunni
Í færslu sem Mette birti síðar meir á Facebook hafnaði hún því að vera sett í sama flokk og samsæriskenningasmiðir, öfgamenn á ystu hægri vængjum eða fasískar hreyfingar. Hún sagðist engu að síður vera fylgjandi strangri útlendingastefnu.
Það er þó ekki afstaða hennar til innflytjendamála yfirhöfuð sem hefur valdið hvað mestu fjaðrafoki heldur notkun hennar á hugtakinu um útskipti.
Danski einingarlistinn, Enhedslisten og umhverfisflokkurinn Alternativet hafa gagnrýnt ummæli Mette. Þá hefur ungliðahreyfing Jafnaðarmannaflokksins einnig gagnrýnt málflutning Mette.
Frederiksen baðst ekki afsökunar í færslu sinni á því að hafa notað orðið og baðst heldur ekki afsökunar á danska þinginu í dag þegar hún sætti harðri gagnrýni frá stuðningsflokkum ríkisstjórnarinnar í fyrirspurnartíma þingsins.
Ummæli Frederiksen komu stuttu eftir að kynnt voru áform fimm Evrópuríkja um að opna brottvísunarstöð í Afríkuríkinu Rúanda og senda þangað fólk á næsta ári. Danmörk er þar á meðal og er mögulegt að um 120 sem fengið hafa synjun um alþjóðlega vernd verði sendir í brottvísunarstöðina.