Friðrik Ólafsson sem lést á síðasta ári níræður að aldri var fyrsti Íslendingurinn til að verða stórmeistari, árið 1958. Hann varð sexfaldur Íslandsmeistari, tvöfaldur Norðurlandameistari og gegndi embætti forseta Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) árin 1978–1982.
Friðrik átti gríðarlegan þátt í að efla skákmenningu á Íslandi og ruddi meðal annars brautina fyrir heimsmeistaraeinvígið milli Fischer og Spassky í Reykjavík 1972. Hann var heiðursfélagi bæði Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambands Íslands, heiðursborgari Reykjavíkur og sæmdur stórriddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu.
Mótið sem helgað er minningu hans er níu umferðir og alls taka 25 skákmenn þátt víðs vegar að. Stórmeistararnir Vignir Vatnar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson og Guðmundur Kjartansson taka þátt auk erlendra keppenda frá meðal annars Noregi, Moldóvu og Norður-Makedóníu.
Fyrsta umferðin fer fram í dag og svo fara fram annað hvort ein eða tvær umferðir á dag fram á sunnudagsmorgun þegar sú síðasta verður leikin.