Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæfingarsundlaug á Sauðárkróki verði opnuð á nýjan leik. Sveitarfélagið er tilbúið að gefa 90% afslátt af gjaldskrá hitaveitunnar til þess að halda lauginni opinni.
„Þar með töldum við að við værum að leggja okkar lóð á vogarskálarnar við að halda þessari þjónustu gangandi. Samt sem áður hefur laugin ekki verið opnuð aftur og við höfum ekki fengið staðfestingu á að svo verði,“ segir Magnús.
Hann telur rekstrarkostnað laugarinnar vera óverulegan í stóra samhenginu og að fólk bíði eftir að nota laugina. „Þarna stendur þessi glæsilega sundlaug með fyrsta flokks aðstöðu tóm. Þeir eru með aðgengi að niðurgreiddu heitu vatni og það eru svo margir aðilar sem bíða eftir þessu og stóla á þessa aðstöðu.“
Þakklátur framlagi Skagfirðinga en getur enga ákvörðun tekið
Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, fagnar framlagi sveitarstjórnarinnar að niðurgreiða heita vatnið en ekki sé hægt að taka neinar ákvarðanir um opnun laugarinnar að svo stöddu.
„Þetta er í rauninni bara mál í vinnslu en það er ljóst að það vantar um 800 milljónir í rekstur heilbrigðisstofnunarinnar. Og þegar við sjáum ekki hver verður lokaniðurstaða fjárlaga eigum við svolítið erfitt með að breyta einhverju varðandi sundlaugina.“