Ný djúpsjávarhöfn á að rísa í Hvalfjarðarsveit. Galtarhöfn ehf. áformar bygginguna og verkefnastjóri er Gunnar Þór Gunnarsson. Gert er ráð fyrir að höfnin og athafnasvæði í kringum hana muni taka 101 hektara svæði í landi Galtarlækjar suðvestan við Grundartanga í Hvalfjarðarsveit.
Galtarhöfn verður fyrsta úthafsskipahöfn landsins í einkaeigu og verður með eins kílómetra löngum viðlegukanti og allt að 18 metra djúpristu. Hún á þar af leiðandi að geta tekið á móti stórum skipum með mikla djúpristu sem er ekki mögulegt víða á suðvesturhorni landsins en „með stærri skipum er mögulegt að fækka ferðum og þar með draga úr kolefnisspori skipaumferðar,“ segir í matsáætlun EFLU.
75 hektara landsvæði raskast verulega
Áformin eru í skipulagsgátt. Þar segir að markmið framkvæmdarinnar sé að byggja upp djúpsjávarhöfn og athafnasvæði í nálægð við höfuðborgarsvæðið sem taki á móti öllum skipagerðum og öllum vörutegundum. Þá muni höfnin og athafnasvæðið hýsa vörugeymslur, geymslusvæði, léttan iðnað og þjónustustarfsemi tengda hafnarrekstri.
Galtarhöfn ehf. gerir ráð fyrir um 250 skipakomum að höfninni á ári, þar af 150 lausafarmaskipum, 60 gámaskipum og 40 skemmtiferðaskipum.
Gert er ráð fyrir landtengingu fyrir skip sem leggjast að bryggju. Heildar raforkuþörf framkvæmdarinnar er áætluð um 30 MW og gert er ráð fyrir að 75 hektarar lands raskist verulega við framkvæmdirnar.
„Reykjavík vantar pláss“
Verkfræðistofunni EFLU hefur verið falið að hafa umsjón með umhverfismatinu.
Samkvæmt gögnum Náttúrufræðistofnunar einkennist svæðið að mestu af graslendi, mólendi og moslendi en innan framkvæmdarsvæðisins eru einnig votlendisblettir sem einkennast af starungsmýravist og gulstararflóavist sem eru vistgerðir með mjög hátt verndargildi. Þá halda ýmsar fuglategundir til á svæðinu.
Umfangsmikil vefsíða hefur verið gerð um Galtarhöfn, eða GHharbour eins og hún er kölluð á síðunni. „Reykjavík vantar pláss. Tillagan bætir við landi,“ segir á síðunni.
„Þegar norðurslóðir opnast er Ísland hlið þeirra að Atlantshafi,“ stendur jafnframt. Þá er lögð mikil áhersla á tengingu við Grænland en höfnin er sögð vera í eins til þriggja daga siglingarfjarlægð frá Grænlandi.