AP segir að brotist hafi verið inn í kerfi tileinkað ákveðinni tegund upplýsingaöflunar sem reiði sig á gögn sem eru þegar aðgengileg á opinberum vettvangi, til að mynda á internetinu eða í gagnagrunnum sem fyrirtæki selja aðgang að. Ekki sé ljóst hver beri ábyrgð á innbrotinu.
The New York Times greindi fyrst frá netárásinni og segir að CIA og skrifstofa yfirmanns leyniþjónustumála hafi nýlega uppgötvað öryggisbrestinn. Hefur miðillinn þetta eftir ónefndum bandarískum ráðamönnum og öðrum sem eru sagðir þekkja til málsins.
Innbrotin hafi haft áhrif á kerfi sem greini opinberar og jafnframt óleynilegar upplýsingar.
Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvaða upplýsingar urðu aðgengilegar í innbrotinu en trúnaðargögn voru ekki í hættu, að sögn heimildarmanna New York Times. Talið sé að upplýsingar sem aðrar ríkisstofnanir höfðu undir höndum hafi sömuleiðis verið í hættu.
Ekki fyrsta árásin síðustu vikur
Ítrekuð tæknivandræði hafa hrjáð bandarískar ríkisstofnanir að undanförnu. Stutt er síðan bilun kom upp í leynilegu innra neti Þjóðaröryggisstofnunarinnar NSA og varði í marga daga en embættismenn sögðu hana ekki afleiðingu netárása.
Í tilviki CIA virðist sem tölvuþrjótur hafi fengið óheimilan aðgang að minnst einu kerfi, að sögn New York Times.
Í síðustu viku virtist Trump Bandaríkjaforseti staðfesta að brotist hefði verið inn í gagnagrunn á vegum alríkislögreglunnar FBI sem notaður er til að deila upplýsingum milli löggæslustofnana um allt land.
Í sömu viku uppgötvaði bandaríska landbúnaðarráðuneytið einnig netöryggisatvik sem leiddi til þess að slökkt var á sumum þeim þjónustum sem starfsmenn nota innanhúss.
Fréttin hefur verið uppfærð.