Sprengjuhótanir bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi í gærmorgun einnig. Ríkislögreglustjóri hefur sagt að lögregla taki hótununum alvarlega en að ekki sé talið að þær tengist hótunum í Evrópu á sama tíma á nokkurn hátt.
Í Danmörku sem og á Íslandi er sprengjuhótunum, sama hve mikil hætta er talin vera á því að þær séu raunverulegar, tekið alvarlega. Fyrirtæki og stofnanir hafa ýmsa verkferla til að bregðast við slíku og algengt er að allir séu sendir heim berist slík hótun.
Slíkir ferlar voru settir í gang í skólum víða í Danmörku í gær en athygli vakti að það gerðu grunnskólar í Esbjerg á sunnanverðu Jótlandi ekki. Ástæðan var, samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins, að enginn starfsmaður hafði séð tölvupóstinn.
„Það var merkt sem ruslpóstur meðal annars vegna netfangs sendandans, það var ekki metið ekta,“ er haft eftir Niels Pedersen sem sér um upplýsingatækni í Esbjergkommúnu.
Eins og bent er á í umfjölluninni sparaði það skólum bæjarins hellings óþarfa vandræði, en á móti kemur að hótunin hefði ekki borist hefði verið um raunverulega sprengjuárás að ræða.
Í lögregluumdæmi Suður- og Suður-Jótlands bárust tilkynningar úr öllum sveitarfélögum nema Esbjerg að skólar hefðu fengið sprengjuhótun í tölvupósti.
„Það gefur að sjálfsögðu tilefni til að greina hvers vegna við stingum í stúf og skoða hvort við höfum skrúfað of hátt upp í stillingunum,“ segir Niels Pedersen.