„Það blasir alveg við að Mette Frederiksen slær í og úr og daðrar að einhverju leyti við kenninguna um útskiptin miklu eða The great replacement,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.
Mikill þrýstingur hefur verið á Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur vegna ummæla sem hún lét falla í viðtali við danska miðilinn BT.
Í viðtalinu sagðist Frederiksen vera Evrópubúi, Dani og frá Álaborg og að hún væri ekki fylgjandi miklum útskiptum.
Til þess að lýsa útskiptunum notaði hún orðið „befolkningsudskiptning“ sem hefur farið öfugt ofan í marga í Danmörku, þar á meðal stuðningsflokka ríkisstjórnarinnar og meðlimi Sósíaldemókrata, flokks Frederiksen.
Kenningin sem Frederiksen vísar til nefnist hin miklu útskipti. „Sem gengur í sinni ýktustu mynd út á það að illvirkjar standi að því að skipta út íbúum Vesturlanda og svona afgera hina kristnu arfleifð og koma á múslimsku samfélagi í Evrópu,“ segir Eiríkur.
„Ég sé ekki að hún sé að meina neitt í líkingu við það en hundahvíslið í þessum málum er þannig að þeir sem á hlýða heyra gjarnan þessa útgáfu kenningarinnar líka.“
Eiríkur hefur sjálfur skrifað um samsæriskenninguna og tekur hana fyrir í bók sinni Weaponizing Conspiracy Theories sem kom út árið 2024.
Eiríkur telur þó að Frederiksen sé ekki að tala um ýktustu útgáfu útskiptanna miklu heldur sé hún að ýja að því að innflytjendur og aðkomufólk í Danmörku setji nýjan svip á samfélagið og umturni því á einhvern hátt.
„Sem er náttúrulega ekki staðan á Norðurlöndunum og alls ekki í Danmörku þar sem það eru ekki nema 10% íbúanna sem eru af framandi uppruna eins og Danir kalla það sjálfir eða utan Vesturlanda, sem er hugtak sem þeir nota mjög gjarnan um þessi mál,“ segir hann.
Partur af stærri þróun í harðnandi innflytjendastefnu
Að mati Eiríks hefur innflytjendastefna í Danmörku harðnað mikið síðustu þrjá áratugi og telur hann nauðsynlegt að túlka ummæli Frederiksen í ljósi þess.
„Þessi stefna í þessa átt í andstöðu við straum aðkomufólks hefst um miðjan tíunda áratuginn þegar Danski þjóðarflokkurinn setur innflytjendamál algerlega á oddinn,“ segir hann. „Þá lýsti þáverandi forsætisráðherra og formaður Sósíaldemókrata þeirri stefnu sem gjörsamlega óboðlegri í siðaðri stjórnmálaumræðu.
Síðan þá hafi þó fleiri og fleiri stjórnmálaflokkar tekið upp harðari innflytjendastefnu.
„Hægri flokkurinn Venstre fyrst, en síðan hafa sósíaldemókratar í seinni tíð líka tekið upp þessa sömu stefnu og halda henni núna úti mun ákafar heldur en Danski þjóðarflokkurinn gerði sjálfur þegar hann hóf þessa för fyrir þremur áratugum,“ segir Eiríkur.
Hann telur að ummæli Frederiksen verði ekki til þess að setja stöðu hennar sem forsætisráðherra í hættu.
„Þetta er bara einu skrefi lengra í sömu átt og hún hefur verið að feta,“ segir hann.
„Auðvitað getur komið fyrir að menn telji of langt gengið og að þá sé eitthvert skrefið sem teljist of langt en hvort þetta sé það er ég ekkert alveg viss um.“