Lögreglumenn verða ítrekað fyrir hótunum og ofbeldi í störfum sínum, líkt og fram kom í Kveik í gær. 130 lögreglumenn kvörtuðu til nefndar um eftirlit með lögreglu yfir vanköntum á rannsóknum embættis héraðssaksóknara í slíkum málum. Ein þeirra er Hildigunnur Einarsdóttir, lögregluþjónn. „Mér var hótað að mér yrði nauðgað. Sem lögreglukonur fá oft,“ segir Hildigunnur. „Þetta er ekki sama samfélagið og var, sko.“
Hún segir svör Karls Inga Vilbergssonar varahéraðssaksóknara við gagnrýni lögreglumanna fáránleg. „Þetta eru bara galin svör,“ segir Hildigunnur. „Að við séum að kæra of mikið. Eins og við eigum að láta þetta yfir okkur ganga.“
Lögreglumenn óttist að vera eltir heim og um öryggi sitt og fjölskyldna sinna. „Ég myndi ekki segja að lögreglumönnum finnist þeir vera öryggir, eins og þeim fannst hérna áður fyrr.“
„Við komumst upp með þetta á Íslandi“
Undir þetta tekur Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna. Hann segir þetta ógnvægilega þróun, þar sem skipulögð glæpastarfsemi sé að skjóta rótum. „Auðvitað óttast maður það, ef maður veit að veit að það eru á götunni menn sem voru bara í sérsveit í einhverjum her, og eru hér að stunda glæpi,“ segir Fjölnir.
Hann segir það senda slæm skilaboð til erlendra glæpagengja að ekki sé tekið á ofbeldi og hótunum gegn lögreglumönnum af festu. „Skilaboðin til þessarra til dæmis manna í Svíþjóð eru bara Við komumst upp með þetta á Íslandi, það er ekkert tekið á þessu þar,“ segir Fjölnir.
Lögreglumenn segi hingað og ekki lengra. „Það er engin þolinmæði, við ætlum að stoppa þetta. Við ætlum að kæra allt, af því að við viljum bara fá fulla vernd.“