Heilbrigðisþingið verður haldi á hótel Hilton Reykjavík frá klukkan 8:30 til 16. Unnsteinn Manuel Stefánsson fer með ráðstefnustjórnina og flytur Alma D. Möller heilbrigðisráðherra opnunarávarpið.
Hægt er að nálgast dagskrána hér.
Fjöldi erinda er á dagskrá. Meðal annars fjallar Eva Rós Ólafsdóttir um starfsemi Bergsins headspace, Vignir Sigurðsson frá heilbrigðisstofnun Suðurlands um ADHD-teymi barna á Suðurlandi og Ársæll Már Arnarsson frá Háskóla Íslands um ólseiga krakka.
Í lok dags verða tvö pallborð, annars vegar um flókin tengsl áhrifaþátta á líðan barna og um vangaveltur og skilaboð ungmenna til stjórnvalda og samfélagsins.