Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni sem send var fjölmiðla í morgun. Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar og stóðu í um tvo klukkutíma en auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.
Fram kemur að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi lent á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum, en hluti áhafnarinnar var fluttur til Reykjavíkur í nótt.
Sjá einnig: Tímalína: Krefjandi björgunaraðgerðum lokið og áhöfn flutt á heilsugæslu
Fram kemur að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi upphaflega borist neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17 í gær um að leki væri kominn að skipinu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum og lýsti skipstjórinn skömmu síðar yfir neyðarástandi og upplýsti stjórnstöðina að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan 9 þar sem frekari upplýsingar um málið verða veittar. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu í spilaranum að neðan.
Fylgst var með gangi mála í vaktinni að neðan og verður þar áfram fylgst með nýjustu vendingum.