Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík klukkan níu. Þar verða veittar frekari upplýsingar og spurningum fjölmiðla svarað.
RÚV verður með aukafréttatíma þar sem sent verður beint út frá fundinum.
Landhelgisgæslan sendi frá sér tilkynningu klukkan 7:36 í morgun þar sem greint var frá afdrifum skipverja. Hún er svohljóðandi:
Tilkynning frá Landhelgisgæslu Íslands: Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk
Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk um 60 sjómílur austur af landinu í gær. Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum.
Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður og voru varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í stöðugum samskiptum við áhöfn þyrlunnar.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17:00 um að leki væri kominn að skipinu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarástandi og upplýsti stjórnstöðina að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang laust eftir 20:00 og klukkan 21:15 kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang.
Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair.
Ákveðið hefur verið að boða til blaðamannafundar klukkan 9 í ráðherrabústaðnum til að veita frekari upplýsingar og svara spurningum fjölmiðla.
Við hefjum hér nýja fréttavakt þar sem við fjöllum um sjóslysið í gær þar sem þrír skipverjar létust þegar línuskipið Jökull ÞH sökk 60 sjómílur austur af landinu. 14 var bjargað á lífi.
Skipstjórinn sendi út neyðarkall á sjötta tímanum í gær. Skömmu síðar fóru skipverjar frá borði og skipið sökk. Allar tiltækar hjálpir voru virkjaðar, flugvél og þyrla Landhelgisgæslunnar flugu austur, þrjú björgunarskip sigldu úr höfn og skipum í grennd var stefnt að slysstað.