Sautján manna áhöfn var um borð en skipið var gert út frá Raufarhöfn. Þegar skipið sökk var það á Héraðsdjúpi, um 100 kílómetra austur af Glettingi. Fiskveiðibáturinn Jökull ÞH 299 stundaði grálúðuveiðar í net og skýrir það hversu langt frá landi skipið var þegar það sökk.
Þyrlan lenti á tólfta tímanum í gærkvöldi, klukkan, 23:45, með skipverja á Egilsstöðum og lauk þar með löngum og krefjandi aðgerðum. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni á tólfta tímanum sagði að aðgerðum hennar um sextíu sjómílur austur af landinu væri lokið. Búið væri að flytja skipverja með þyrlunni TF-GRÓ til Egilsstaða og að þeim yrði sinnt á heilsugæslunni.
Eftir að neyðarkallið barst um klukkan 17 báðu varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skipverja að fara í björgunargalla. Skömmu síðar fékk Gæslan þær upplýsingar að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.
Virkjuðu samhæfingarmiðstöð almannavarna
Eftir að neyðarkallið barst var samhæfingarstöð almannavarna virkjuð. Þá sinna þær einingar sem vinna í almannavarnakerfinu hver ákveðnu hlutverki, þar á meðal Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Rauði krossinn. Þaðan koma aðilar saman á stöðinni að Laugavegi 166 og samhæfa aðgerðir miðað við það sem er að gerast.
Aðgerðirnar voru afar umfangsmiklar og tóku margir þátt. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra tóku þátt í aðgerðunum. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.
Þrjú björgunarskip voru send á vettvang: Hafbjörg frá Neskaupsstað, Sveinbjörn frá Vopnafirði og Gunnbjörg frá Raufarhöfn sem og varðskipið Freyja. Þá var þremur svæfingalæknum og þremur svæfingahjúkrunarfræðingum frá Landspítala einnig flogið frá Reykjavík til Egilsstaða.
TF-SIF fyrst á vettvang
Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar greindi frá því í gær að flugvélin TF-SIF hefði verið fyrst á vettvang. Áhöfn hennar hefði fundið mennina og reynt að kasta gúmmíbátum til þeirra en þeir ekki náð þeim. Erfitt væri að vera einungis með eina þyrlu til reiðu.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni í gær kom fram að eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar hefði verið komin á vettvang um klukkan átta og laust eftir klukkan níu hafi þyrla Landhelgisgæslunnar einnig verið komin á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang.
Georg sagði í samtali við RÚV í gærkvöldi að þetta hefðu verið víðtækar aðgerðir og veðuraðstæður hefðu verið erfiðar. Flugstjóri Landhelgisgæslunnar hafi lýst mjög krefjandi aðstæðum og þurft að fljúga frá skipinu í eitt skipti til að brenna eldsneyti og létta vélina til að geta komið öllum skipverjum um borð.
Georg sagði næstu skref að meta ástand skipverja. Það væri í höndum heilsugæslunnar á Austfjörðum. Varðskip væri á leiðinni á vettvang fiskiskipsins og unnið verði að úrvinnslu þessa máls.
Þá sagði hann að búast mætti við frekari upplýsingum um hádegisbil á morgun. Þetta kom fram í aukafréttatíma RÚV á miðnætti.
Ráðherrar í miðstöð
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra voru í samhæfingarmiðstöð á meðan aðgerðunum stóð.
„Hugur minn er hjá sjómönnunum fyrir austan, ástvinum þeirra og öllu því góða og hugrakka fólki sem vinnur nú að björgun þeirra. Á slíkum stundum slær hjarta þjóðarinnar í sama takti,“ skrifaði Halla Tómasdóttir forseti Íslands í færslu á Facebook og bætti við „[m]egi allir komast heilir heim.“
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, tjáði sig einnig og sagði þjóðina hafa beðið á milli vonar og ótta.