Kanadíska lögreglan telur sig loks hafa upplýst morðið á hinni 16 ára Jacqueline „Jackie“ Dunleavy sem fannst látin í borginni London í Ontario í Kanada árið 1968. Málið hafði verið óupplýst í 58 ár.Með hjálp nýjustu DNA-rannsóknartækni tókst lögreglu að bera kennsl á manninn sem talinn er hafa myrt Jackie. Sá hét Michael Joseph Moore og var 25 ára þegar morðið var framið. Hann lést árið 2018 og verður því ekki látinn svara til saka.CBS News greinir frá þessu.
Jackie var aðeins 16 ára þegar hún var myrt – Morðgátan leyst 58 árum síðar