Þrír skipverjar fiskiskipsins Jökuls ÞH 299 fórust í sjóslysinu í gærkvöld og fjórtán var bjargað á lífi, samkvæmt tilkynningu Landhelgisgæslunnar. Nöfn hinna látnu hafa ekki verið birt. Blaðamannafundur verður haldinn klukkan níu í ráðherrabústaðnum.
Jökull, sem er gerður út frá Raufarhöfn og er í eigu GPG Seafood, sökk um sextíu sjómílur austur af landinu. Allir sautján í áhöfninni höfðu lent í sjónum. Í tilkynningu Gæslunnar segir að stjórnstöðinni hafi borist neyðarboð frá skipstjóra laust eftir klukkan 17 um að leki væri kominn að skipinu. Varðstjórar báðu áhöfnina um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarástandi og greindi frá því að verið væri að yfirgefa skipið. Samkvæmt heimildum Nútímans fékk Jökull netið í skrúfuna um klukkan 17 og síðan gekk brotsjór yfir skipið, með þeim afleiðingum að það sökk á endanum.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, eftirlitsflugvélin TF-SIF og sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra voru kallaðar út, auk þess sem öll skip úti fyrir Austurlandi voru beðin um að halda á vettvang. Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð. TF-SIF kom á staðinn laust eftir klukkan 20 og þyrla gæslunnar, TF-GRÓ, klukkan 21.15, ásamt fyrstu fiskiskipunum. Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður, samkvæmt Gæslunni. RÚV greinir frá því að þyrlan hafi þurft að bregða frá um stund til að eyða eldsneyti og létta sig, svo hún gæti borið alla skipverjana.
Þyrlan lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum, samkvæmt tilkynningu Gæslunnar. Hluti áhafnarinnar var fluttur til Reykjavíkur í nótt með TF-SIF og flugvél Norlandair.