Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar segir að björgunaraðgerðir á slysstað hafi verið umfangsmiklar. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar hafi áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa tekið þátt í aðgerðinni.
„Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður og voru varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í stöðugum samskiptum við áhöfn þyrlunnar.“
Í tilkynningunni segir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi borist neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17:00 um að leki væri kominn að skipinu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi beðið áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar hafi skipstjórinn lýst yfir neyðarástandi og upplýst stjórnstöðina að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
„Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang. Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.
„Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang laust eftir 20:00 og klukkan 21:15 kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang. Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair. Ákveðið hefur verið að boða til blaðamannafundar klukkan 9 í ráðherrabústaðnum til að veita frekari upplýsingar og svara spurningum fjölmiðla.“