Undanfarin fimm ár er algengara að húsnæðiskostnaður íþyngi fólki sem býr í leiguhúsnæði en hjá þeim sem búa í sínu eigin.
Alls búa nú um 36 þúsund manns á heimilum þar sem húsnæðiskostnaður er íþyngjandi eða rúm 9,1%, samkvæmt niðurstöðum nýrrar lífskjarakönnunar Hagstofunnar. Það er nærri efri mörkum meðaltals áranna 2021 til 2026, þar sem hlutfallið var sjö til 9,2%, hæst 2024.
Á þessu ári bjuggu 8,1 prósent barna undir 18 ára aldri við íþyngjandi húsnæðisaðstæður. Róðurinn er hlutfallslega þyngstur hjá leigjendum þar sem húsnæðiskostnaður íþyngir 23,4 prósentum samanborið við 5,4 í eigin húsnæði. Hvaða áhrif hefur það á hversdagslífið? Yngvi Ómar Sigrúnarson er formaður Samtaka leigjenda á Íslandi.
„Það þýðir að þau eru að borga í raun og veru 40% af tekjum sínum í húsnæðiskostnað með húsaleigubótum, sem er mjög íþyngjandi.“ Yngvi bendir á að hlutfall einstæðra foreldra sé mjög hátt.
„Og þá getum við velt því fyrir okkur hvernig börn þeirra hafa aðgengi að tómstundum og íþróttaiðkun.“ Yngvi bendir á að hlutfall einstæðra foreldra sé mjög hátt.
Illa sé hugað að húsnæðisþörf tekjulægstu hópanna á Íslandi. Reykjavíkurborg hafi ekki náð markmiði um 5% hlutfall óhagnaðardrifins húsnæðis meðan hlutfallið sé 20% í Danmörku og 50% í Vínarborg.
„Í samanburðarlöndunum er hlutfall óhagnaðardrifins húsnæðis margfalt hærra en hérna á Íslandi. Þar er húsnæðisbyrðin ekki eins þung. Það er bara reglan almennt. Af hverju er ekki horft á húsnæði sem réttindi fólks og þessu sinnt betur?,“ spyr Yngvi.
„Í úrtakinu eru einstaklingar í leiguhúsnæði færri en einstaklingar í eigin húsnæði og öryggisbil hlutfallsins hjá einstaklingum í leiguhúsnæði er breitt, eða 16,2 - 30,6% árið 2026. Einstaklingar í endurgjaldslausu húsnæði eru taldir með í heildarhlutfallinu en eru ekki sýndir sérstaklega þar sem þeir eru mjög fáir í úrtakinu,“ segir á vef Hagstofunnar.