„Þakklæti fyrir þau mannslíf sem tekist hefur að bjarga blandast djúpri sorg yfir þeim sem við misstum. Hugur okkar er hjá öllum sem nú eiga um sárt að binda,“ skrifar forsetinn. Hún segir hjónin færa Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum, áhöfnum Skinneyjar, Svans og Harðbaks, heilbrigðisstarfsfólki og öllu því góða og hugrakka fólki sem komið hafi að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir þrekvirki sem unnið hafi verið við erfiðar aðstæður.
„Á sorgarstund sem þessari stöndum við saman sem þjóð. Megi samheldni og kærleikur veita okkur styrk.“