Landhelgisgæslan greindi frá því í morgun að þrír hefðu farist þegar fiskiskip sökk um 60 sjómílur austur af landinu í gær. Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum.
Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður og voru varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í stöðugum samskiptum við áhöfn þyrlunnar.
Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair.