Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum og fylgjast má með útsendingunni hér fyrir neðan.
Fram hefur komið í yfirlýsingu frá Landhelgisgæslunni að björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.
Á blaðamannafundinum munu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, ræða við fjölmiðla.
Vísir verður í beinni útsendingu með fréttatíma klukkan 8:45. Mögulega þarf að endurhlaða síðuna.