Aðgerðum Landhelgisgæslunnar um sextíu sjómílur austur af landinu þar sem íslenska fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk er lokið. Misvísandi upplýsingar bárust um framvindu björgunaraðgerðanna um tíma en klukkan 23:18 barst tilkynning frá Landhelgisgæslunni sem staðfesti þetta.
Þá sagði að áhöfn skipsins hefði verið hífð um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flygi með hana til Egilsstaða. Þyrlan erlent á Egilsstöðum.
Ekki væri unnt að greina nánar frá líðan skipverjanna að svo stöddu og að ekki verði veittar frekari upplýsingar í bili.
Allir enduðu í sjónum
Sjóbjörgunarsveitir og Landhelgisgæslan voru kallaðar út skömmu eftir klukkan 17 í dag eftir að neyðarkall barst frá fiskiskipi austur af landinu. Skömmu eftir að útkallið barst yfirgaf áhöfnin skipið. Allir skipverjar enduðu í sjónum.
Stjórnstöð almannavarna í Skógarhlíð var virkjuð. Forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra voru þar allar í kvöld.
Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar var til viðtals í aukafréttatíma sjónvarps klukkan 22. Þar sagði hann flugvélina TF-SIF hafa verið fyrsta á vettvang.
Náðu sambandi við skipverja í gegnum talstöð
Áhöfn flugvélarinnar hafi reynt að kasta gúmmíbátum til áhafnarinnar án árangurs. Aðstæður hafi verið erfiðar en aðgerðir gengið vel. Það hafi tekið langan tíma að komast á vettvang. Björgunaraðilar hafi verið í slitróttu sambandi við skipverja í gegnum talstöð sem var í keðju við aðra.
„Við náðum sambandi við áhafnarmeðlimi og erum enn í sambandi við þá.“
Georg sagði of snemmt að segja hvað hefði komið fyrir.