Fiskiskipið sem er í vanda statt austur af landinu heitir Jökull og hefur skráningarnúmerið ÞH299 en 17 manns voru um borð. Aðstæður á staðnum eru afar erfiðar. Allt tiltækt björgunarlið er á leið á staðinn eða komið þangað. Skipið er sokkið og allir skipverjar lentu í sjónum. Björgunaraðgerðum á hafi úti er nú lokið og allir áhafnarmeðlimir Jökuls komnir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar en líðan þeirra liggur ekki fyrir.
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Björgunaraðgerðum á sjó lokið - Allir komnir um borð í þyrluna