Sjávarháski: Hafa verið í talstöðvasambandi við skipverja eftir að þeir lentu í sjónum

Sjávarháski: Hafa verið í talstöðvasambandi við skipverja eftir að þeir lentu í sjónum

Sjávarháski: Hafa verið í talstöðvasambandi við skipverja eftir að þeir lentu í sjónum

Upplýsingar berast héðan og þaðan um framvindu björgunaraðgerða. Fréttir hafa verið sagðar af því að allir sjómennirnir hafi verið hífðir upp úr sjónum en það hefur ekki fengist staðfest af samhæfingarstöð almannavarna.

„Hugur minn er hjá sjómönnunum fyrir austan, ástvinum þeirra og öllu því góða og hugrakka fólki sem vinnur nú að björgun þeirra. Á slíkum stundum slær hjarta þjóðarinnar í sama takti,“ skrifar Halla Tómasdóttir forseti Íslands á Facebook.

„Megi allir komast heilir heim.“

Í nýrri tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir að aðgerðir þyrlusveitar standi enn yfir.

Tilkynning Lanhelgisgæslunnar í heild:

Aðgerðir þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar standa enn yfir á vettvangi og von er á frekari upplýsingum klukkan 23:00

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er í samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð ásamt forsætisráðherra og dómsmálaráðherra.

„Við náðum sambandi við áhafnarmeðlimi og erum enn í sambandi við þá,“ segir Georg.

Björgunaraðilar hafi verið í slitrótu sambandi við skipverja sem var í keðju með öðrum og hafði gripið með sér talstöð.

„Þannig við erum vongóðir með það að þetta fari á sem bestan máta.

Hann segir of snemmt að segja hvað hafi komið fyrir.

Spurður hvort búið sé að bjarga einhverjum segir Georg erfitt að segja til um það. Aðgerðir séu yfirstandandi.

„Við vonum að hún skili árangri.“

Samhæfingarstöð er í Skógahlíð í Reykjavík og svæðisstjórn á Austurlandi á Egilsstöðum. Björgunarbátar björgunarsveita fóru frá Neskaupstað, Vopnafirði og Raufarhöfn, björgunarbáturinn frá Raufarhöfn snéri síðar við.

Hjalti Stefánsson tökumaður tók þessar myndir við björgunarsveitarhúsið í Neskaupstað.

Aðspurður segist Georg vissulega hafa áhyggjur af versnandi veðri á svæðinu. Hann bindi þó vonir við að hlutirnir fari að ganga hratt fyrir sig eins og staðan er núna. Það hafi tekið langan tíma að komast á vettvang.

Jökull ÞH299 er 962 brúttótonna línu- og netaskip smíðað í Noregi árið 1996 og hefur heimahöfn á Raufarhöfn. GPG Seafood á Húsavík keypti skipið í desember árið 2020, áður var það gert út við Grænland undir nafninu Nanoq.

Georg staðfestir að aðeins ein þyrla sé til taks.

„Við erum með öfluga áhöfn og þeir eru komnir langt út fyrir öll mörk en þeir ætla sér að bjarga þessum mönnum.“

Flugvélin TF-SIF var fyrst á vettvang en Georg segir að áhöfn flugvélarinnar hafi reynt að kasta út gúmmíbátum til skipverjanna. Það hafi þó ekki borið árangur.

Georg segir að strax og neyðarkall hafi borist laust eftir klukkan 17 í dag. Þá hafi strax verið ljóst að atvikið væri alvarlegt. Skömmu eftir að útkallið barst hafi skipverjar yfirgefið skipið.

Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir aðstæður á vettvangi erfiðar. Það sé dimmt, mikil ölduhæð og vindur. Mikil áhætta fylgi aðgerðunum sem gangi þó vel.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra eru í samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð.

Tvær sjúkraflugvélar frá Akureyri lentu á Egilsstöðum í kvöld, samkvæmt upplýsingum Gunnars Rúnars Ólafssonar, slökkviliðsstjóra á Akureyri. Líklegt þykir að þyrla Landhelgisgæslunnar flytji einhverja úr áhöfninni þangað.

Samkvæmt heimildum fréttastofu sökk skipið og allir skipverjarnir lentu í sjónum. Þyrla Landhelgisgæslunnar er komin á slysstað og björgunaraðgerðir eru hafnar.

Áhöfn er búin að yfirgefa skipið. Landhelgisgæslan var í sambandi við skipverja og bað þá um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar yfirgáfu þeir skipið. Eftirlitsflugvél er á staðnum og fiskiskip sömuleiðis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslu.

Tilkynning í heild sinni:

Skipstjóri íslensks fiskiskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar laust eftir klukkan 17 og lýsti yfir neyðarástandi.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum og skömmu síðar fékk Landhelgisgæslan upplýsingar um að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.

Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra og Austurlandi.

Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang um klukkan átta og laust eftir klukkan níu kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang. Aðgerðir standa yfir. 

Aukafréttatími verður í sjónvarpi klukkan 22:00. Honum verður líka útvarpað á samtengdum rásum.

Landhelgisgæslan verst allra fregna af slysinu en von er á tilkynningu á næstu mínútum.

Togarinn Skinney frá Skinney Þinganesi er skammt frá slysstaðnum. Jón Þórðarson stýrimaður á Skinney segir þá eiga um 40 mínútur eftir að slysstað. Fiskiskipin Svanur og Harðbakur eiga styttra eftir og Svanur farinn að slá af segir Jón. Þá sé flugvél Landhelgisgæslunnar kominn á sömu slóðir og sveimi yfir.

Hann segir aðstæður á vettvangi ágætar, mikið hafi lægt það sé tunglbjart og hálfskýjað.

Eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, er komin á slysstað og stutt er í þyrluna TF-GRÓ. Björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupsstað er næst af þeim skipum sem eru á leið á staðinn.

Á Marine Traffic má sjá fiskiskip sem eru á leið að staðsetningu Jökuls ÞH 299. Það eru til dæmis togararnir Harðbakur, Skinney og Svanur. Af Marine Traffic að dæma er útlit fyrir að skipin komi á vettvang á undan björgunarskipum.

Aðstæður á slysstað eru krefjandi, veður er slæmt og ölduhæð er mikil. Erfitt er að koma björgum á staðinn. Veður á að fara versnandi með kvöldinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er talsverð ölduhæð á slysstað, átta til níu metrar. Hvasst, þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og úrkoma á köflum. 

Sjóbjörgunarsveitir, þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út eftir að neyðarkallið barst. Þá eru þrjú björgunarskip á leið á vettvang: Hafbjörg frá Neskaupstað, Sveinbjörn frá Vopnafirði og Gunnbjörg frá Raufarhöfn.

Neyðarkall barst frá fiskiskipinu Jökli ÞH299 á sjötta tímanum. Bjargir eru á leið á staðinn. Við munum greina frá því helsta hér í lifandi fréttavakt.

#hafa #sjávarháski #talstöðvasambandi #verið #við


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-25-sjavarhaski-hafa-verid-i-talstodvasambandi-vid-skipverja-eftir-ad-their-lentu-i-sjonum-493816

📰 Aðrar fréttir

Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið og áhöfnin flutt í Egilsstaði
📅 26.11.2026 👁️ 2
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið og áhöfnin flutt í Egilsstaði
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar um sextíu sjómílur austur af landinu þar sem íslenska fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk er lokið. Misvísandi upplýsingar bár...
Stalking law simplified to become one offence
📅 26.11.2026 👁️ 2
Stalking law simplified to become one offence
The new stalking offence will be introduced after a review found existing legislation was confusing.
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Björgunaraðgerðum á sjó lokið - Allir komnir um borð í þyrluna
📅 26.11.2026 👁️ 1
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Björgunaraðgerðum á sjó lokið - Allir komnir um borð í þyrluna
Fiskiskipið sem er í vanda statt austur af landinu heitir Jökull og hefur skráningarnúmerið ÞH299 en 17 manns voru um borð. Aðstæður á staðnum eru afa...
Aukafréttatími á miðnætti vegna skipsskaða
📅 25.11.2026 👁️ 4
Aukafréttatími á miðnætti vegna skipsskaða
Aukafréttatími verður í sjónvarpi á miðnætti vegna björgunaraðgerða undan austanverðu landinu. Honum verður líka útvarpað á samtengdum rásum.Skipið Jö...
Að­gerðum lokið og skip­verjar fluttir til Egils­staða - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 3
Að­gerðum lokið og skip­verjar fluttir til Egils­staða - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni sem hyggst ekki greina frá líðan skipverja eða veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Tilkynnt var um að...
„Megi allir komast heilir heim“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 3
„Megi allir komast heilir heim“ - Vísir
Skrifaði hún þessi orð í færslu á Facebook-reikningi sínum ásamt því að skrifa að á „slíkum stundum slær hjarta þjóðarinnar í sama takti“. Þegar hafa ...
Halla Tómasdóttir: „Megi allir komast heilir heim“
📅 25.11.2026 👁️ 2
Halla Tómasdóttir: „Megi allir komast heilir heim“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sendir skipverjum fiskiskipsins Jökuls, ástvinum þeirra og björgunarfólki hlýjar kveðjur í færslu á samfélagsmiðlu...
Andy Taylor er látinn
📅 25.11.2026 👁️ 2
Andy Taylor er látinn
Andy Taylor, gítarleikari ensku sveitanna Duran Duran og Power Station, er látinn, 65 ára að aldri. Hann lést af völdum blöðruhálskrabbameins síðastli...
Gítar­leikari Duran Duran látinn - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 4
Gítar­leikari Duran Duran látinn - Vísir
Í tilkynningu frá eiginkonu hans Tracey segir að hann hafi verið stórkostlegur gítarleikari, yndislegur eiginmaður og faðir og stoltur afi. Taylor gek...
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Skipverjar í sjónum - Björgunaraðgerðir standa yfir
📅 25.11.2026 👁️ 4
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Skipverjar í sjónum - Björgunaraðgerðir standa yfir
Fiskiskipið sem er í vanda statt austur af landinu heitir Jökull og hefur skráningarnúmerið ÞH299 en 17 manns voru um borð. Aðstæður á staðnum eru afa...
Landsnet fjárfestir í orkuvinnslu og orkunýtingu
📅 25.11.2026 👁️ 5
Landsnet fjárfestir í orkuvinnslu og orkunýtingu
Landsnet annast og ber ábyrgð á meginflutningskerfi raforku hér á landi.Samkvæmt orkuspá mun eftirspurn eftir orku halda áfram að aukast næstu árin og...
Duran Duran guitarist Andy Taylor dies, aged 65
📅 25.11.2026 👁️ 4
Duran Duran guitarist Andy Taylor dies, aged 65
The musician, who co-wrote some of the band's biggest hits, had been treated for prostate cancer.
Fengu upp­lýsingar um að á­höfnin væri að yfir­gefa skipið - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 4
Fengu upp­lýsingar um að á­höfnin væri að yfir­gefa skipið - Vísir
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Aust...
At least 30 killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
📅 25.11.2026 👁️ 2
At least 30 killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
Another 19 are injured after the tanker reportedly overturns on a busy ring road in the Egyptian capital.
Thirty-one killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
📅 25.11.2026 👁️ 2
Thirty-one killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
Another 21 are injured after the tanker reportedly overturns on a busy ring road in the Egyptian capital.
„Myndi sofa betur vitandi að þeir geti ekki skaðað neinn annan“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 4
„Myndi sofa betur vitandi að þeir geti ekki skaðað neinn annan“ - Vísir
Það var hinn bandaríski Carey Washington Vinson sem lést en faðir hans er stjórnmálamaðurinn Joe Winson. Hann hefur nú birt tvær færslur varðandi andl...
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
📅 25.11.2026 👁️ 5
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
Fiskiskip er í vanda statt austur af landinu og björgunaraðilar eru á leið á staðinn en litlar upplýsingar liggja fyrir um stöðuna en skipverjar eru þ...
Bláa lónið meðal þeirra sem urðu fyrir netárás
📅 25.11.2026 👁️ 4
Bláa lónið meðal þeirra sem urðu fyrir netárás
Bláa lónið er meðal þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir netárás í dag. Þetta staðfestir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri fyrirtækisins.Hún segir árá...
Ekki ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi
📅 25.11.2026 👁️ 4
Ekki ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi.R...
Sautján skipverjar í háska austur af landinu
📅 25.11.2026 👁️ 5
Sautján skipverjar í háska austur af landinu
Togarinn Skinney frá Skinney Þinganesi er skammt frá slysstaðnum. Jón Þórðarson stýrimaður á Skinney segir þá eiga um 40 mínútur eftir að slysstað. Fi...
Sjávarháski austur af landinu: Skipverjar í sjónum og skipið sokkið
📅 25.11.2026 👁️ 5
Sjávarháski austur af landinu: Skipverjar í sjónum og skipið sokkið
Georg segir að strax og neyðarkall hafi borist laust eftir klukkan 17 í dag. Þá hafi strax verið ljóst að atvikið væri alvarlegt. Skömmu eftir að útka...
Sjávarháski: Aðgerðum lokið – Ekki unnt að greina frá líðan skipverja
📅 25.11.2026 👁️ 1
Sjávarháski: Aðgerðum lokið – Ekki unnt að greina frá líðan skipverja
Þetta segir Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar. Annar aukafréttatími verður á miðnætti. Þyrla Landhelgisgæslunnar sem hífði áhöfn Jökuls úr ...
Sautján skipverjar á íslensku fiskiskipi í sjávarháska – umfangsmiklar björgunaraðgerðir
📅 25.11.2026 👁️ 5
Sautján skipverjar á íslensku fiskiskipi í sjávarháska – umfangsmiklar björgunaraðgerðir
Sautján skipverjar á íslensku fiskiskipi í sjávarháska – umfangsmiklar björgunaraðgerðir Fréttin25. nóvember 2026InnlentLeave a Comment Sautján skipve...
Lýðskólinn kominn til að vera á Flateyri
📅 25.11.2026 👁️ 4
Lýðskólinn kominn til að vera á Flateyri
Lýðskólinn á Flateyri hefur eignast sitt eigið húsnæði.Hingað til hefur starfsemi skólans verið dreift í leiguhúsnæði um bæinn. Nú verður hún sameinuð...
Afkoman batnar um þrjá milljarða milli umræðna
📅 25.11.2026 👁️ 3
Afkoman batnar um þrjá milljarða milli umræðna
Uppfærsla á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar milli fyrstu og annarrar umræðu þýðir að meiri afgangur verður á rekstri ríkissjóðs en upphaflegt fru...
Telur allt að 200 milljónir vanta í uppgefinn kostnað við nýjan vef Veðurstofunnar
📅 25.11.2026 👁️ 5
Telur allt að 200 milljónir vanta í uppgefinn kostnað við nýjan vef Veðurstofunnar
Telur allt að 200 milljónir vanta í uppgefinn kostnað við nýjan vef Veðurstofunnar Fréttin25. nóvember 2026Fjármál, InnlentLeave a Comment Kostnaður v...
Fimm konur myrtar á hverri klukku­stund - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 5
Fimm konur myrtar á hverri klukku­stund - Vísir
Samkvæmt skýrslunni hefur tíðni kvennadrápa lækkað mun hægar en tíðni manndrápa á heimsvísu. Á árunum 2010 til 2025 lækkaði tíðni manndrápa nærri tvöf...
Þorgerður Katrín: Annaðhvort gunguskapur eða tækifærismennska að styðja ekki bókun 35
📅 25.11.2026 👁️ 5
Þorgerður Katrín: Annaðhvort gunguskapur eða tækifærismennska að styðja ekki bókun 35
Við Íslendingar getum ekki setið hjá á meðan Kanadamenn, Norðmenn og Bretar kanna leiðir til að tengjast ESB nánar. Verkefnin blasa við eftir nei-ið í...
Hlaupið á eftir konum í Bónus - „Staðreynd að íslam leyfir ekki aðlögun að kristni“
📅 25.11.2026 👁️ 5
Hlaupið á eftir konum í Bónus - „Staðreynd að íslam leyfir ekki aðlögun að kristni“
Oddviti Miðflokksins í Kópavogi tekur undir með forsætisráðherra Danmerkur um að verið sé að skipta þjóðum út með menningarlegum breytingum og vitnar ...
Biðja farþega flugs frá Íslandi afsökunar
📅 25.11.2026 👁️ 4
Biðja farþega flugs frá Íslandi afsökunar
Forsvarsmenn flugvallarins í Edinborg hafa beðið farþega flugs frá Keflavík afsökunar eftir mistök við móttöku. Farþegarnir voru sendir í gegnum vitla...
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns sagðir um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
📅 25.11.2026 👁️ 5
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns sagðir um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
Fiskiskip er í vanda statt austur af landinu og björgunaraðilar eru á leið á staðinn en litlar upplýsingar liggja fyrir um stöðuna en skipverjar eru þ...
Fjárhagsstaða Seltjarnarnesbæjar þung – Útsvarið hækkar
📅 25.11.2026 👁️ 6
Fjárhagsstaða Seltjarnarnesbæjar þung – Útsvarið hækkar
„Fjárhagsstaða bæjarins er þung og búin að vera þung undanfarin misseri, í þessu verðbólguumhverfi sem er búið að vera alltof lengi við lýði,“ segir Þ...
Kría tapaði 349 milljónum á einu ári – rekstrargjöld námu 44,6 milljónum á hvert stöðugildi
📅 25.11.2026 👁️ 5
Kría tapaði 349 milljónum á einu ári – rekstrargjöld námu 44,6 milljónum á hvert stöðugildi
Kría tapaði 349 milljónum á einu ári – rekstrargjöld námu 44,6 milljónum á hvert stöðugildi Fréttin25. nóvember 2026Fjármál, InnlentLeave a Comment Hr...
Vél­menni gætu rutt snjó og gervi­greind spáð fyrir um hálku í Reykja­vík - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Vél­menni gætu rutt snjó og gervi­greind spáð fyrir um hálku í Reykja­vík - Vísir
Þar var nefndur möguleiki á að prófa vélmenni við snjóhreinsun og hálkuvarnir á göngu- og hjólastígum og myndu vélmennin þá létta undir með starfsfólk...
Yfirvöld Kanaríeyja óska aðstoðar vegna fjölda flóttamanna
📅 25.11.2026 👁️ 6
Yfirvöld Kanaríeyja óska aðstoðar vegna fjölda flóttamanna
Tvö þúsund flóttamenn komu til eyjunnar El Hierro á bátum í gær. Leiðtogi Kanaríeyja skrifar í færslu á X að hann óski eftir fundi með forseta framkvæ...
Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð vegna tíðra netárása með gervigreind - Árás gerð á kerfi Reykjavíkurborgar
📅 25.11.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð vegna tíðra netárása með gervigreind - Árás gerð á kerfi Reykjavíkurborgar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna auki...
Már segir þetta vera betri lausn en að takmarka lánstíma verðtryggðra lán
📅 25.11.2026 👁️ 4
Már segir þetta vera betri lausn en að takmarka lánstíma verðtryggðra lán
Már Wolfgang Mixa prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands færir fyrir því rök í Facebook-pistli, sem vakið hefur nokkra athygli, að það sé hepp...
Nota opin gervigreindartól til að ráðast á íslenska innviði
📅 25.11.2026 👁️ 6
Nota opin gervigreindartól til að ráðast á íslenska innviði
Almannavarnir og CERT-IS virkjuðu viðbragðsáætlun um verndun ómissandi upplýsingainnviða eftir netárásir, meðal annars á tölvukerfi Reykjavíkurborgar....
Gervigreindarárás á netkerfi Reykjavíkur og jafnvel fleiri fyrirtækja
📅 25.11.2026 👁️ 6
Gervigreindarárás á netkerfi Reykjavíkur og jafnvel fleiri fyrirtækja
Tölvuþrjótar nota opin gervigreindartól til að ráðast á íslenska upplýsingainnviði. . Samkvæmt heimildum RÚV eru nokkrar gervigreindarárásir í gangi þ...
Gervigreindarárás á netkerfi Reykjavíkur: Komust yfir lykilorð og inn í gagnagrunn
📅 25.11.2026 👁️ 5
Gervigreindarárás á netkerfi Reykjavíkur: Komust yfir lykilorð og inn í gagnagrunn
Lykilatriði er að gæta varkárni gagnvart gervigreind og sleppa allri fífldirfsku segir Logi Már Einarsson háskóla-, menningar- og nýsköpunarráðherra. ...
Til skoðunar hvort tölvuárás hafi beinst að innlendri greiðslumiðlun
📅 25.11.2026 👁️ 3
Til skoðunar hvort tölvuárás hafi beinst að innlendri greiðslumiðlun
Seðlabanki Íslands hefur síðustu misseri unnið að því að efla viðnámsþrótt fjármálakerfisins á Íslandi vegna aukinnar hættu á netárásum.„Við þurfum að...
Umfangsmikil tölvuárás á upplýsingainnviði – Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð
📅 25.11.2026 👁️ 2
Umfangsmikil tölvuárás á upplýsingainnviði – Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð
Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd Europe, segir fyrirtækið hvorki hafa orðið vart við tölvuárás á kerfi sín né vísbendingar um mögulega árás í dag. F...
Líklegt að þjóðríki hafi ráðist á 1984 og erlendar leyniþjónustur áhugasamar
📅 25.11.2026 👁️ 7
Líklegt að þjóðríki hafi ráðist á 1984 og erlendar leyniþjónustur áhugasamar
Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984, segir árásarmennina sem réðust á fyrirtækið í síðustu viku mjög líklega þjóðríki. Árásin hafi verið viðamik...
Al­var­leg at­vik síðustu daga urðu til þess að óvissustigi var lýst yfir - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Al­var­leg at­vik síðustu daga urðu til þess að óvissustigi var lýst yfir - Vísir
Þetta segir yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Nokkuð hefur verið fjallað um umfangsmikla árás á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í ...
Út­kall vegna fiski­skips í vanda - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Út­kall vegna fiski­skips í vanda - Vísir
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í samtali við Vísi og jafnframt að Samhæfingarstöð almannavar...
Sau­tján manna á­höfn fiski­skips í vanda - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 5
Sau­tján manna á­höfn fiski­skips í vanda - Vísir
Útkallið barst á sjötta tímanum síðdegis í dag vegna fiskiskips í vanda austur af landinu og voru Landhelgisgæslan og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafé...
Netárás á tölvukerfi Reykjavíkurborgar
📅 25.11.2026 👁️ 7
Netárás á tölvukerfi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Nánari upplýsingar verði veittar eftir...
Netárás á tölvu­kerfi borgarinnar veldur röskun á þjónustu - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Netárás á tölvu­kerfi borgarinnar veldur röskun á þjónustu - Vísir
Kemur þetta fram í tilkynningu frá borginni en þar segir einnig að sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS vinni...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna netárása
📅 25.11.2026 👁️ 3
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna netárása
Viðbragðsáætlun Almannavarna ríkislögreglustjóra og CERT-IS hefur verið virkjuð um verndun ómissandi upplýsingainnviða. Áætlunin er virkjuð á óvissust...
Virkja viðbragðsáætlun al­manna­varna vegna netárása - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 4
Virkja viðbragðsáætlun al­manna­varna vegna netárása - Vísir
Greint er frá þessu í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra. Áætlunin sé virkjuð á óvissustigi almannavarna sem feli í sér aukna vöktun og samrá...