Fréttastofa RÚV verður með aukafréttatíma í sjónvarpi og á vef vegna sjóslyssins. Fréttatíminn hefst klukkan 8:57. Í fréttatímanum verður sent út beint frá blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum þar sem yfirvöld veita upplýsingar um slysið og svara spurningum fjölmiðla.
Þrír skipverjar létust. 14 var bjargað á lífi. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti áhöfnina til Egilsstaða þar sem fjölmennt lið heilbrigðisstarfsfólks og björgunarsveitarfólks beið hennar. Þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Flogið var með hluta áhafnarinnar til Reykjavíkur í nótt.