https://www.youtube.com/watch?v=0pF9cbTCLsk
Áður en Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti Íslands hafði hann unnið með bandarískum þingmönnum, sovéskum vísindamönnum og þjóðarleiðtogum á borð við Olof Palme og Rajiv Gandhi að því að draga úr kjarnorkuvígbúnaði. Í Spjallinu með Frosta Logasyni segir hann frá þessari sögu í tilefni af útkomu bókar sinnar Vegferð um veröldina og rifjar upp hvernig reynslan nýttist honum síðar á Bessastöðum.
Ólafur Ragnar lýsir því hvernig hópur þingmanna fékk leiðtoga úr ólíkum heimshlutum til liðs við sig, kom á samstarfi bandarískra og sovéskra vísindamanna og beitti sér fyrir banni við kjarnorkutilraunum. Hann segir líka frá því hvers vegna hann lagði svo mikla rækt við tengslin við Bandaríkjaþing og hvernig árin á alþjóðavettvangi bjuggu hann undir að verja hagsmuni Íslands í Icesave-deilunni.
Frosti og Ólafur Ragnar ræða einnig tengslin við Indland og Gandhi-fjölskylduna, hvers vegna hann lagði áherslu á samskipti við Asíuríki í forsetatíð sinni og hvernig heimsókn kínverskra ráðamanna í Nesjavallavirkjun varð kveikjan að samstarfi Íslands og Kína um jarðhita. Ólafur Ragnar rifjar upp þátt Guðrúnar Katrínar og dætra þeirra í þessari vegferð og segir frá því þegar hann sneri aftur til Indlands með barnabörnin.
Viðtalið hefst á uppgjöri við þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og færist síðar yfir í Úkraínustríðið, samskipti stórveldanna á norðurslóðum og það sem kalda stríðið getur kennt okkur um samskipti við ríki sem við eigum í djúpstæðum ágreiningi við. Í gegnum samtalið vaknar sama spurningin og liggur til grundvallar bókinni. Hvernig getur smáríki haft áhrif þegar stórveldin virðast ráða ferðinni?
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/