Útlit er fyrir leiðindaveður um allt land í dag og nótt, hvassviðri eða storm. Ferðaveður getur verið varasamt, sérstaklega þar sem miklar vindhviður geta orðið við fjöll og á opnum svæðum.
Til viðbótar er útlit fyrir mikið vatnsveður á Austfjörðum og Suðausturlandi þar sem búast má við vatnavöxtum og aukinni hættu á flóðum og samgöngutruflunum. Veðurstofan varar við skriðuhættu á Austfjörðum og Suðausturlandi í dag og á morgun vegna uppsafnaðrar og áframhaldandi úrkomu.
Byrjað er að rigna en gulu viðvaranirnar ganga í garð hver á fætur annarri frá klukkan tíu, fyrst á miðhálendinu og austast á landinu. Síðan færist það vestur og norður yfir landið. Síðustu viðvaranirnar taka gildi á norðvesturhorninu í kvöld. Veðrið gengur ekki alveg niður fyrr en um níu í fyrramálið þar sem það geisar lengst.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Gengur í suðaustan og austan 15-23 m/s eftir hádegi, en hægari vestanlands fram eftir degi. Rigning með köflum, talsverð úrkoma á Suðaustur- og Austurlandi, en léttir til norðanlands eftir hádegi. Hiti 2 til 10 stig. Dregur hægt úr vindi í nótt, fyrst suðvestantil. Víða sunnan 8-15 og rigning með köflum eða skúrir undir hádegi á morgun, en allhvasst eða hvasst á Vestfjörðum fram eftir degi. Kólnar síðdegis með dálitlum éljum eða slydduéljum.