Áhöfn TF-GRÓ, þyrlu Landhelgisgæslunnar, náði að hífa upp skipverja línuskipsins Jökuls ÞH í gærkvöld og flytja þá til Egilsstaða. Skipverjar voru fluttir á Heilsugæsluna á Egilsstöðum til aðhlynningar. Ekki var hægt að greina frá líðan skipverja í gærkvöld.
Þrír sjómenn létust í slysinu. 14 var bjargað á lífi.
Samkvæmt heimildum fréttastofu verður blaðamannafundur fyrir hádegi.
Þetta er það sem við vitum:
Skipstjóri skipsins sendi út neyðarkall og var í samskiptum við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á sjötta tímanum í gær. Skipverjar fóru í björgunargalla og yfirgáfu skipið skömmu síðar.
Skipið var að veiðum um 60 sjómílur austur af landinu. Vont veður og mikil ölduhæð var þar sem skipið sökk.
Hluti skipverja náði að hlekkja sig saman og gat verið í slitróttu samtali við Landhelgisgæsluna í gegnum neyðartalstöð sem þeir höfðu með sér.
Landhelgisgæslan sendi flugvélina TF-SIF og þyrluna TF-GRÓ strax á vettvang. Hún er eina þyrla Landhelgisgæslunnar sem var til taks. Reglum samkvæmt eiga þyrlur Gæslunnar ekki að fara svo langt frá landi einar. Áhöfnin ákvað að gera það engu að síður.
„Við erum með öfluga áhöfn og þeir eru komnir langt út fyrir öll mörk en þeir ætla sér að bjarga þessum mönnum,“ sagði Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, í aukafréttatíma RÚV klukkan 22 í gærkvöld.
Þrjú björgunarskip voru kölluð út og öllum fiskiskipum fyrir austan land var stefnt að slysstað. Landhelgisgæslan óskaði eftir aðstoð annarra ríkja. Aðeins Norðmenn voru í aðstöðu til að veita aðstoð en hún hefði ekki borist fyrr en síðla nætur.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var virkjuð og björgunaraðgerðum stjórnað þaðan. Einnig var opnuð svæðisstjórn á Egilsstöðum til að stýra aðgerðum þar. Forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra fylgdust með í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar meðan á björgunaraðgerðum stóð.
Flugvélin TF-SIF var fyrst á slysstað, kom auga á skipverja og reyndi að kasta til þeirra björgunarbátum. Skipverjarnir náðu ekki til þeirra í þeim öldugangi og veðurham sem þá ríkti.
TF-GRÓ kom á vettvang og byrjaði að hífa menn upp úr sjónum. Hún var tvo klukkutíma á vettvangi. Forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði í aukafréttatíma á miðnætti að áhöfn þyrlunnar hefði þurft að bregða frá til að eyða eldsneyti og létta þyrluna svo hægt væri að ná skipverjum um borð.
Flogið var með heilbrigðisstarfsfólk frá Reykjavík til að það gæti sinnt mönnunum fyrir austan.
Fiskiskipin Barði og Svanurinn komu fyrst skipa á vettvang og gátu veitt upplýsingar og þannig aðstoðað við björgunina.
Landhelgisgæslan staðfesti klukkan 23:18 í gærkvöld að björgunaraðgerðum væri lokið og að búið væri að ná öllum skipverjum upp í TF-GRÓ, þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan lenti á flugvellinum á Egilsstöðum um 20 mínútur í miðnætti. Farið var með skipverja á Heilsugæslustöðina á Egilsstöðum.
Þrír sjómenn létust í slysinu. 14 var bjargað á lífi. Þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á Heilsugæslunni á Egilsstöðum. Flogið var með hluta skipverja til Reykjavíkur í nótt.