Þetta segir Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, í samtali við fréttastofu í ljósi alvarlegs sjóslyss sem varð um 60 sjómílum austan af Glettingi í gærkvöld. Þrír létust þegar að Jökull ÞH 299 sökk síðdegis í gær. Skipið gerði frá Raufarhöfn sem er hluti af Norðurþingi.
Hann segir atburðinn vera áfall fyrir samfélag Norðurþings jafnt sem samfélag Íslands í heild sinni.
„Hugur okkar er auðvitað hjá aðstandendum og fjölskyldum þeirra sem og samstarfsfólki og áhafnarmeðlimum öðrum.“
Spurður hvernig honum og íbúum Norðurþings hafi orðið við þegar fréttir af slysinu bárust í gær segir hann:
„Okkur var náttúrulega gríðarlega brugðið og vorum að sjálfsögðu að fylgjast með þessu í allt gærkvöldið og fram á nótt. Þetta er áfall fyrir samfélagið sem þarf að vinna úr og við tökumst bara á við það.“
Hann minnir á að Rauði krossinn býður upp á áfallahjálp. Rauði krossinn kom upp aðstöðu fyrir fólk í Norðurþingi í samstarfi við útgerðaraðila Jökuls ÞH. Aðstaðan var strax gerð virk í gærkvöldi.
„Fólk getur verið í sambandi við Rauða krossinn og leitað sér aðstoðar. Við verðum boðin og búin til að veita alla þá hjálp sem hægt er að veita í slíkum málum,“ segir hann og kveðst ánægður með viðbrögð Landhelgisgæslunnar og viðbragðsaðila.