Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði þetta á blaðamannafundi í morgun og hafði eftir mönnum úr áhöfn Jökuls.
Hvað varðar ástæður þess að Jökull sökk sagði Georg að það lægi ekki fyrir. Það myndi væntanlega koma í ljós við rannsókn Rannsóknarnefndar samgönguslysa.
Fylgjast má með vendingum í dag í vaktinni á Vísi hér.
Georg hafði skömmu áður sagt frá því að sigmennirnir tveir sem voru um borð í TF-GRÓ, þyrlu Landhelgisgæslunnar, hefðu sagt það flókið að losa áhöfnina úr böndum sem þeir hafi notað til að festa sig saman í sjónum.
Nauðsynlegt hefði verið að klippa þá lausa áður en hægt var að hífa þá upp í þyrluna og sagði hann hægt að fullyrða að unnið hafi verið þrekvirki.
Georg sagði áhöfnina hafa sýnt einstaka þrautsegju og útsjónarsemi. Meðal annars með því að ná að binda sig saman og nota þá reynslu og þekkingu sem þeir hafi fengið í Slysavarnaskóla sjómanna.