Jade Thirlwall er fædd árið 1992 í Englandi og öðlaðist fyrst frægð með stúlknasveitinni Little Mix. Hún hóf sóló-feril sinn árið 2022 og gaf út lagið Angel Of My Dreams árið 2024 sem varð nokkuð vinsælt í Bretlandi.
Það var svo ekki fyrr en raunveruleikastjarnan Kylie Jenner lokaði Victoria's Secret tískusýningunni við lagið að það skaust upp á vinsældarlistum um allan heim og má segja að ferill Jade hafi farið á rosalegt flug í kjölfarið.
Jade er greinilega hrifin af þessum sniðum frá Yeoman þar sem hún klæddist sambærilegu brúnu setti fyrir gigg hjá sér á dögunum.
Hún sannarlega ekki eina stórstjarnan sem hefur á síðustu árum klæðst flíkum frá Yeoman en þar má meðal annars nefna tónlistarkonurnar Taylor Swift, Dua Lipa og auðvitað Laufeyju, raunveruleikastjörnuna Kylie Jenner, fyrirsætuna Ashley Graham og Chicken Shop-þáttastjórnandann Ameliu Dimoldenberg.