Í úrskurðinum segir að sorptunnur íbúanna séu 21 metra frá götunni og því hafi borgin lagt skrefagjaldið á en það nemur 10 þúsund krónum fyrir tunnu fyrir blandaðan úrgang og 3.200 krónum fyrir tunnur undir pappírs- og plastúrgang.
Íbúar í húsinu mótmæltu gjaldinu og leituðu til nefndarinnar þar sem þeir bentu á að húsin væru frá árinu 1944 og að flutningsleiðin lægi um borgarland en ekki einkalóð þeirra. Töldu þeir ósanngjarnt að þurfa að greiða aukalega vegna aðstæðna sem þeir ráða ekki við, skipulags borgarinnar þar með talið.
Á lóðum húsanna væri ekki hægt að koma tunnum fyrir við götu og myndi tilfærsla þeirra nær götunni leiða til þess að þau yrðu staðsett á gangstétt og þar með hindra umferð gangandi vegfarenda. Slíkt væri óheimilt samkvæmt reglum borgarinnar.
Úrskurður nefndarinnar var birtur í vikunni og tók nefndin undir sjónarmið Reykjavíkurborgar um að þessi lengri flutningsleið kalli á meiri vinnu og tíma hjá sorphirðumönnum. Segir að eðli málsins samkvæmt séu aðstæður lóða breytilegar og verði það ekki talið brot á jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins þó að sumir fasteignareigendur eigi ekki kost á því að koma sorpíláti fyrir í minna en 15 metra fjarlægð frá sorphirðubílum.
Nefndin ákvað því að hafna kröfu kærenda um að ógilda þá ákvörðun borgarinnar um að leggja á viðbótarlosunargjöld vegna sorphirðu vegna fjarlægðar ruslatunna íbúanna frá sorphirðubílnum.