Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.
Hann er Volodomyr Zelensky reiður vegna árása Úkraínu á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar sem hafa orðið til hækkunar á verði dísilolíu.
Trump sagði blaðamönnum í Hvíta húsinu að hann hefði tjáð Zelensky að hann mætti gera „það sem honum sýndist“ gegn Rússlandi, fyrir utan það að ráðast á stöðvarnar.
Í gær gerðu Trump og Pútín Rússlandsforseti með sér samning um kaup á átján hundruð þúsund tonnum af dísilolíu næstu þrjá mánuði.
Zelensky gagnrýndi samkomulagið harðlega. Hann sagði að með þessu fengju Rússar aukið fjármagn til stríðsreksturs í Úkraínu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ítrekaði stuðning sinn við Úkraínu á samfélagsmiðlinum X í dag. Hún sagði að vikan hefði verið sérstaklega mannskæð í landinu og hvatti til viðskiptaþvingana gagnvart Rússum.
Trump undirritaði lög um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum fyrir aðeins þremur vikum. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér að Bandaríkin geti lagt ofurtolla á öll þau ríki sem kaupa orku af Rússum.