Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu gagnrýnir harðlega samning sem Trump gerði við Pútín í gær um kaup á 1.800.000 tonnum af dísilolíu af Rússlandi á næstu þremur mánuðum.
Zelensky segir samninginn vera fjárfestingu í stríði sem ætti að reyna að ljúka fremur en að lengja. Í færslu á X í dag sagði Zelensky að með árásum Rússlandshers á Úkraínu í dag væru Rússar að sýna þakklæti sitt fyrir samninginn. „Í dag sýndi Rússland þakklæti sitt með því að varpa fimm sprengjum á íbúahús í Zaphorsía,“ skrifaði Zelensky.
Þrír öldungadeildarþingmenn Demókrata á Bandaríkjaþingi, þau Jeanne Shaheen, Chuck Schumer og Elizabeth Warren, hafa kallað samninginn svik við Úkraínu, bandamenn í Evrópu og þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Í sameiginlegri yfirlýsingu saka þau Trump um að fjármagna stríðsvél Rússlands undir því yfirskyni að vera að reyna að lækka eldsneytisverð, þegar hækkun þess megi rekja til árása Bandaríkjanna á Íran.
Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði í dag að aflétting refsiaðgerða á þennan hátt hjálpi Rússum að fjármagna stríðsrekstur sinn í Úkraínu. „Þetta er ekki tíminn til að minnka þrýsting á Rússa og það ætlar Evrópa ekki að gera,“ skrifaði Kallas í færslu á samfélagsmiðlum.
Trump segir í færslu á samfélagsmiðlum að hans helsta forgangsmál sé lægra eldsneytisverð fyrir Bandaríkjamenn, sérstaklega fyrir bændur og vöruflutningabílstjóra. Tímasetningin er ekki talin nein tilviljun. Þingkosningar verða í Bandaríkjunum 3. nóvember og talið að Trump vilji reyna að ná verðinu niður fyrir þann tíma.
Aðeins þrjár vikur eru síðan Bandaríkjaforseti undirritaði lög um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum. Þær fela meðal annars í sér að Bandaríkin geti lagt ofurtolla á öll þau ríki sem kaupa orku af Rússum.
Þegar er skortur á eldsneyti í Rússlandi vegna árása Úkraínumanna á olíuinnviði.