Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu verslunarmiðstöð landsins.
„Þetta var bara frekar súrrealískt móment, ég var náttúrlega bara 11 ára á þessum tíma og ég man bara að þegar var ýtt á takkann þá fór allt af stað og það var bara frekar gaman að því,“ segir Smári Páll Svavarsson í samtali við fréttastofu í tilefni af 25 ára afmæli Smáralindar.
Linda Margrét Gunnarsdóttir, sem var níu ára við opnun Smáralindar fyrir 25 árum, tekur undir að það hafi verið bæði spennandi og eftirminnilegt að taka þátt í opnunarhátíðinni.
„Maður var með kvíðahnút en samt ótrúlega gaman. Þetta var mjög skemmtilegur tími. Maður var mjög montinn,“ segir Linda.
Smári og Linda fengu 10 þúsund króna gjafabréf í Smáralind fyrir þátttöku sína í opnunarhátíðinni.
„Sem á þeim tíma var frekar mikill peningur. Við fórum held ég og keyptum eitthvað þarna eftir þetta, hvort ég hafi ekki keypt mér kjól og bangsa fyrir peninginn,“ segir Linda.
Flutt úr Smára- og Lindahverfi en fara stundum í Smáralind
Linda býr ekki lengur í Lindahverfi í Kópavogi heldur í Hörgársveit. Hún segist þó fara í Smáralind í hvert sinn sem leiðin liggur á höfuðborgarsvæðið.
Smári býr heldur ekki lengur í Smárahverfi heldur er fluttur í miðbæ Reykjavíkur. Hann segist sjaldan eða annað slagið fara í Smáralind.
„Ég fer eiginlega frekar í Kringluna af því það er bara nær. En stundum fer maður í Smáralind, ef maður kíkir í Smárabíó eða eitthvað.“