Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lögreglu bar að garði, segir í umfjöllun New York Times.
„Ég hef aldrei séð annað eins á rúmlega 28 ára starfsferli mínum,“ sagði Rick Lorah, lögreglustjóri í Erie, við bandaríska miðla. Hann sagði borgina aldrei hafa orðið vitni að slíku manntjóni og aðstæðurnar væru verulega óhugnalegar.