Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Tilefnið er að fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða.
Meðal þeirra sem leggja verkefninu lið eru fjármálaráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Bandalag íslenskra skáta, Félag Framhaldsskólanema, Skólameistarafélag Íslands, Landssamband íslenskra stúdenta, Riddarar kærleikans, Ungmennafélag Íslands, Æskulýðsvettvangurinn, Heimili og Skóli og Embætti forseta Íslands.
Samtölin fara fram í menntaskólum víða um land og Halla Tómasdóttir forseti mun einnig halda samtal á Bessastöðum.
Ungt fólk leiðir samtalið en þeim sem yngri og eldri eru er boðið að taka þátt til að skapa raunverulegt samtal kynslóða. Meðal umræðuefna eru menntun, framtíðin, gervigreind, samfélagsmiðlar og tungumálið en hægt var að senda inn tillögur að umræðuefnum til umsjónaraðila verkefnisins.
Hægt verður að fylgjast með samtalinu í beinu streymi hér á Vísi bæði í dag og á morgun og hefst útsending klukkan 14:00 báða dagana.